Samkvæmt virðisaukaskattskýrslum var minni velta í flestum atvinnugreinum á tímabilinu maí-júní 2020 en á sama tímabili árið áður. Mest lækkun var hjá ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggjendum (-93%), í rekstri gististaða (-80%), í leigu á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum (-49%) og í flutningum og geymslu (-48%).
Velta eykst í nokkrum atvinnugreinum
Í nokkrum atvinnugreinum var meiri velta á tímabilinu maí-júní 2020 en á sama tímabili árið áður. Velta jókst í smásölu (+10%) og heildverslun að undanskilinni fisk- og olíuverslun (+5%).
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum (milljarðar króna) | ||||||
Maí-júní 2019 | Maí-júní 2020 | Breyting, % | Júlí 2018 - júní 2019 | Júlí 2019 - júní 2020 | Breyting, % | |
Alls án lyfjaframleiðslu, landbúnaðar og skógræktar¹² | 792 | 677 | -14 | 4.578 | 4.373 | -4 |
Landbúnaður og skógrækt² | .. | .. | .. | .. | .. | .. |
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða | 66 | 65 | -2 | 392 | 410 | 4 |
C-24 Framleiðsla málma | 39 | 34 | -12 | 256 | 223 | -13 |
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma | 76 | 75 | -1 | 435 | 429 | -2 |
D/E Veitustarfsemi | 32 | 32 | 0 | 194 | 193 | 0 |
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 62 | 57 | -9 | 363 | 351 | -3 |
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja | 30 | 26 | -15 | 153 | 137 | -11 |
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk | 42 | 36 | -14 | 251 | 243 | -3 |
G-4671 Olíuverslun | 28 | 18 | -36 | 144 | 131 | -9 |
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun | 65 | 68 | 5 | 366 | 383 | 5 |
G-47 Smásala | 85 | 93 | 10 | 486 | 510 | 5 |
H Flutningar og geymsla | 76 | 39 | -48 | 458 | 357 | -22 |
I55 Rekstur gististaða | 18 | 4 | -80 | 102 | 76 | -25 |
I56 Veitingasala og -þjónusta | 18 | 13 | -28 | 100 | 88 | -12 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 42 | 41 | -4 | 243 | 254 | 4 |
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum | 10 | 5 | -49 | 51 | 40 | -22 |
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur | 21 | 1 | -93 | 116 | 81 | -30 |
Aðrar atvinnugreinar | 80 | 70 | -13 | 467 | 469 | 0 |
¹ Velta skv. virðisaukaskattskýrslum er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein. | ||||||
² Margir bændur skila virðisaukaskattskýrslu hálfsárslega og hafa lengri skilafrest en aðrir. Ekki eru komnar áreiðanlegar tölur um veltu í landbúnaði og skógrækt fyrri helming árs 2020. |
Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 20. ágúst sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 657,2 milljarðar króna í mars-apríl 2020 sem var 10,0% lækkun frá sama tímabili árið 2019. Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin vera 657,5 milljarðar sem er 9,9% lækkun á milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum. Einnig er birt töluleg samantekt á því hvernig nokkrir undirflokkar breytast við endurskoðun birtra hagtalna.
Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar