FRÉTT FYRIRTÆKI 20. ÁGÚST 2020

Minni velta var í flestum atvinnugreinum á tímabilinu mars-apríl 2020 en á sama tímabili árið áður. Á þessu tímabili fara áhrif Covid-19 fyrst að gæta. Mest lækkun var hjá ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggjendum (-76,6%), í rekstri gististaða og veitingarekstri (-54,4%), hjá bílaleigum (-41,0%) og í olíuverslun (-33,0%).

Velta jókst í nokkrum atvinnugreinum
Í nokkrum atvinnugreinum var meiri velta á tímabilinu mars-apríl 2020 en á sama tímabili árið áður. Helst ber að nefna upplýsingatækni og fjarskipti (+12,5%), smásölu (+4,7%), heildverslun, það er að undanskilinni verslun með fisk og olíu, og veitustarfsemi. Í nokkrum þessara greina er velta háð gengi en gengisvísitalan hækkaði um 11% milli ára, þ.e. frá mars-apríl 2019 til sama tímabils 2020. Hækkun á milli ára í upplýsingatækni og fjarskiptum er vegna hækkunar tveggja undirflokka: „Framleiðsla á kvikmyndum, myndböndum og sjónvarpsefni; hljóðupptaka og tónlistarútgáfa“ (+89%) og „Þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni“ (+18%).

Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum (milljarðar króna)
  Mars-apríl 2019 Mars_apríl 2020 Breyting, % Maí 2018 - apríl 2019 Maí 2019 - apríl 2020 Breyting, %
Alls án lyfjaframleiðslu¹ 730 657 -10,0 4.633 4.540 -2,0
Landbúnaður og skógrækt² .. .. .. 52 52 0,8
A-031/C-102 Fiskveiðar og vinnsla sjávarafurða 67 64 -4,5 365 381 4,2
A-032 Fiskeldi 5 4 -28,2 20 30 49,3
C-24 Framleiðsla málma 43 42 -2,2 262 227 -13,1
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma 68 68 0,2 436 429 -1,5
D/E Veitustarfsemi 33 34 3,6 192 193 0,8
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu 53 47 -11,5 363 357 -1,7
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja 25 22 -11,0 158 141 -10,9
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk 48 43 -10,9 246 248 1,0
G-4671 Olíuverslun 23 15 -33,0 140 141 0,4
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun 60 62 3,4 363 381 4,9
G-47 Smásala 76 80 4,7 482 502 4,1
H Flutningar og geymsla 63 40 -37,2 476 394 -17,3
I Rekstur gististaða og veitingarekstur 27 12 -54,4 202 184 -8,9
J Upplýsingar og fjarskipti 39 44 12,5 242 255 5,6
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum 6 4 -41,0 51 45 -12,4
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur 16 4 -76,6 115 100 -13,2
Erlend fyrirtæki sem selja rafræna þjónustu til einstaklinga á Íslandi 4 4 -14,0 20 21 5,6
Aðrar atvinnugreinar 71 67 -5,6 447 458 2,6
¹ Velta skv. virðisaukaskattskýrslum er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein.
² Margir bændur skila virðisaukaskattskýrslu hálfsárslega. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar.

Velta í maí-júní
Fimmtudaginn 27. ágúst verður birt velta í maí-júní 2020 samkvæmt virðisaukaskattskýrslum.

Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 20. maí sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 662,9 milljarðar króna í nóvember-desember 2019 sem var 1,7% lækkun frá sama tímabili árið 2019. Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin vera 649,8 milljarðar sem er 4,0% lækkun á milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum. Einnig er birt töluleg samantekt á því hvernig nokkrir undirflokkar breytast við endurskoðun birtra hagtalna.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.