Velta reyndist vera mun meiri í vor en vorið 2020, enda voru lokanir og takmarkanir tíðar í fyrravor vegna kórónuveirunnar. Á tímabilinu mars-apríl 2021 var velta skv. virðisaukaskattskýrslum 18% hærri en á sama tímabili 2020 og 6% hærri en á sama tímabili 2019.
Ef tímabilið mars-apríl 2021 er borið saman við sama tímabil 2019, þá jókst velta verulega skv. virðisaukaskattskýrslum í smásölu, heildsölu að undanskilinni olíverslun og í útflutningsgreinum. Á sama tíma hækkaði gengisvísitala um 10%. Miklar lækkanir voru í öllum greinum tengdum ferðaþjónustu og olíuverslun.
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum (milljarðar króna) | ||||||
Mars-apríl 2019 | Mars-apríl 2020 | Mars-apríl 2021 | Breyting 2019-2020, % | Breyting 2020-2021, % | Breyting 2019-2021, % | |
Alls án lyfjaframleiðslu¹ | 731,2 | 657,8 | 775,1 | -10 | 18 | 6 |
Landbúnaður og skógrækt² | .. | .. | .. | .. | .. | .. |
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða | 72,4 | 68,3 | 95,2 | -6 | 39 | 31 |
C-24 Framleiðsla málma | 43,1 | 42,2 | 50,4 | -2 | 19 | 17 |
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma | 69,1 | 66,4 | 80,0 | -4 | 21 | 16 |
D/E Veitustarfsemi | 32,3 | 33,7 | 36,7 | 4 | 9 | 14 |
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 53,3 | 47,5 | 54,3 | -11 | 14 | 2 |
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja | 24,8 | 21,7 | 27,1 | -12 | 25 | 9 |
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk | 47,9 | 42,8 | 57,9 | -11 | 35 | 21 |
G-4671 Olíuverslun | 22,6 | 15,2 | 18,5 | -33 | 22 | -18 |
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun | 59,8 | 61,2 | 72,8 | 2 | 19 | 22 |
G-47 Smásala | 75,9 | 79,6 | 94,1 | 5 | 18 | 24 |
H Flutningar og geymsla | 63,0 | 39,7 | 42,0 | -37 | 6 | -33 |
I55 Rekstur gististaða | 12,1 | 4,3 | 3,1 | -65 | -27 | -74 |
I56 Veitingasala og -þjónusta | 15,3 | 8,2 | 11,6 | -46 | 40 | -25 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 39,1 | 45,3 | 44,4 | 16 | -2 | 13 |
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum | 6,4 | 3,8 | 3,7 | -41 | -2 | -42 |
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur | 13,0 | 2,7 | 1,8 | -80 | -34 | -86 |
Aðrar atvinnugreinar | 78,5 | 73,0 | 79,2 | -7 | 9 | 1 |
¹ Velta skv. virðisaukaskattskýrslum er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein. | ||||||
² Margir bændur skila virðisaukaskattskýrslu hálfsárslega og hafa lengri skilafrest en aðrir. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar. |
Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 28. apríl sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 634,0 milljarðar króna í janúar-febrúar 2021 sem var 2,5% lækkun frá sama tímabili árið 2020. Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin vera 635,4 milljarðar sem er 2,3% lækkun á milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum. Einnig er birt töluleg samantekt á því hvernig nokkrir undirflokkar breytast við endurskoðun birtra hagtalna.
Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar