Velta í sjávarútvegi var 6,3% meiri í nóvember-desember 2019 samkvæmt virðisaukaskattskýrslum en á sama tímabili árið áður. Velta á árinu 2019 í heild var 13,7% meiri en á árinu 2018 og velta í fiskeldi tvisvar sinnum meiri á árinu 2019 en 2018.
Minni velta í flugi
Velta í flutningum og geymslu var 7,3% minni í nóvember-desember 2019 en á sama tímabili 2018. Þessi samdráttur stafar meðal annars af minni veltu í flutningum með flugi (-6,0%).
Hægir á byggingaframkvæmdum
Velta í „Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnslu hráefna úr jörðu“ var 3,1% minni í nóvember-desember 2019 en sömu mánuði 2018. Hins vegar var velta á árinu 2019 í heild 2,5% meiri en á árinu 2018.
Samdráttur í framleiðslu málma og bílasölu
Velta í framleiðslu málma var 16,5% minni í nóvember-desember 2019 en á sama tímabili 2018. Þá dróst velta í sölu og viðhaldi vélknúinna ökutækja saman um 7,5% á sama tímabili vegna minni sölu á nýjum bílum.
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum (milljarðar króna) | ||||||
Nóv.-des. 2018 | Nóv.-des. 2019 | Breyting, % | 2018 | 2109 | Breyting, % | |
Alls án lyfjaframleiðslu¹ | 812 | 806 | -0,8 | 4.542 | 4.635 | 2,0 |
Landbúnaður og skógrækt² | ... | ... | ... | 52 | 52 | -0,6 |
A-031/C-102 Fiskveiðar og vinnsla sjávarafurða | 61 | 64 | 6,3 | 345 | 392 | 13,7 |
A-032 Fiskeldi | 3 | 6 | 94,2 | 14 | 28 | 106,1 |
C-24 Framleiðsla málma | 42 | 35 | -16,5 | 254 | 234 | -7,8 |
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma | 85 | 85 | 0,3 | 430 | 440 | 2,3 |
D/E Veitustarfsemi | 35 | 35 | -0,9 | 188 | 192 | 2,2 |
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 70 | 67 | -3,1 | 357 | 365 | 2,5 |
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja | 23 | 21 | -7,5 | 163 | 146 | -10,1 |
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk | 39 | 37 | -4,7 | 228 | 258 | 13,4 |
G-4671 Olíuverslun | 19 | 21 | 9,1 | 133 | 149 | 11,7 |
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun | 69 | 70 | 1,3 | 370 | 395 | 6,9 |
G-47 Smásala | 92 | 94 | 1,4 | 476 | 497 | 4,4 |
H Flutningar og geymsla | 67 | 62 | -7,3 | 494 | 424 | -14,2 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 30 | 28 | -6,7 | 202 | 199 | -1,6 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 45 | 47 | 3,3 | 224 | 235 | 4,7 |
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum | 8 | 7 | -13,6 | 51 | 48 | -6,4 |
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur | 16 | 14 | -12,0 | 113 | 113 | 0,9 |
Erlend fyrirtæki sem selja rafræna þjónustu til einstaklinga á Íslandi | 2 | 2 | -9,9 | 9 | 9 | 8,2 |
Aðrar atvinnugreinar | 86 | 90 | 4,9 | 442 | 459 | 3,8 |
¹ Virðisaukaskattskyld velta er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein. | ||||||
² Margir bændur skila virðisaukaskattskýrslu hálfsárslega. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar. |
Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 15. janúar sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 799,1 milljarðar króna í september-október 2019 sem var 1,07% hækkun frá sama tímabili árið 2018. Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin vera 800,2 milljarðar sem er 1,21% hækkun milli ára.
Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum. Einnig er birt töluleg samantekt á því hvernig nokkrir undirflokkar breytast við endurskoðun birtra hagtalna.
Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar