Vinsamlegast athugið að þessi fréttatilkynning var leiðrétt 27. apríl 2021 frá upprunalegri útgáfu.
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum dróst saman um 2% á tímabilinu nóvember-desember 2020 í samanburði við sama tímabil árið áður. Mest lækkun var í atvinnugreinum tengdum ferðaþjónustu.
Minni velta í ferðaþjónustu og tengdum greinum
Velta minnkaði í einkennandi greinum ferðaþjónustu s.s. hjá ferðaskrifstofum, í flugrekstri, rekstri gististaða og veitingarekstri. Einnig minnkaði velta í greinum sem tengjast ferðaþjónustu óbeint, s.s. sölu á eldsneyti.
Velta jókst í flestum flokkum smásölu
Velta jókst í framleiðslu og er veltan svipuð og fyrir tveimur árum. Velta jókst í mörgum flokkum heildsölu og flestum flokkum smásölu, t.d. var velta í stórmörkuðum 15% meiri í nóvember-desember 2020 en á sama tímabili ári áður. Sumar atvinnugreinar þar sem velta jókst eru tengdar útflutningi en hafa ber í huga að gengisvísitala hækkaði um 13% á þessu tímabili.
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum (milljarðar króna) | ||||||
Nóv.-des. 2019 | Nóv.-des. 2020 | Breyting, % | 2019 | 2020 | Breyting, % | |
Alls án lyfjaframleiðslu, landbúnaðar og skógræktar1 2 | 788 | 775 | -2 | 4.611 | 4.235 | -8 |
Landbúnaður og skógrækt2 | .. | .. | .. | .. | .. | .. |
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða | 71 | 72 | 2 | 424 | 424 | 0 |
C-24 Framleiðsla málma | 35 | 42 | 20 | 234 | 232 | -1 |
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma | 79 | 90 | 13 | 438 | 442 | 1 |
D/E Veitustarfsemi | 36 | 36 | 0 | 193 | 200 | 4 |
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 69 | 68 | -1 | 369 | 345 | -7 |
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja | 21 | 25 | 15 | 147 | 147 | 0 |
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk | 38 | 40 | 5 | 260 | 250 | -4 |
G-4671 Olíuverslun | 20 | 15 | -25 | 149 | 106 | -29 |
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun | 67 | 79 | 17 | 379 | 404 | 7 |
G-47 Smásala | 94 | 110 | 17 | 496 | 544 | 10 |
H Flutningar og geymsla | 62 | 40 | -36 | 427 | 256 | -40 |
I55 Rekstur gististaða | 12 | 3 | -76 | 99 | 35 | -64 |
I56 Veitingasala og -þjónusta | 17 | 10 | -40 | 100 | 71 | -29 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 51 | 51 | 0 | 249 | 261 | 5 |
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum | 7 | 4 | -46 | 49 | 31 | -36 |
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur | 12 | 1 | -91 | 97 | 21 | -79 |
Aðrar atvinnugreinar | 98 | 91 | -7 | 500 | 468 | -6 |
1 Velta skv. virðisaukaskattskýrslum er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein. | ||||||
2 Margir bændur skila virðisaukaskattskýrslu hálfsárslega og hafa lengri skilafrest en aðrir. Ekki eru komnar áreiðanlegar tölur um veltu í landbúnaði og skógrækt seinni helming árs 2020. |
Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 8. janúar sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 760,89 milljarðar króna í september-október 2020 sem var 5,19% lækkun frá sama tímabili árið 2019. Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin vera 761,67 milljarðar sem er 5,10% lækkun á milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum. Einnig er birt töluleg samantekt á því hvernig nokkrir undirflokkar breytast við endurskoðun birtra hagtalna.
Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar