FRÉTT FYRIRTÆKI 23. FEBRÚAR 2023

Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum í nóvember til desember jókst í flestum atvinnugreinum samanborið við sömu mánuði árið 2021. Velta í framleiðslu málma dróst þó saman um 14% á milli tímabila en yfir árið í heild var velta í greininni 33% hærri árið 2022 en 2021.

Viðsnúningur í ferðaþjónustu heldur áfram. Velta ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda var 61% meiri í nóvember-desember 2022 en í sömu mánuðum 2021 og 159% hærri árið 2022 en árið 2021. Í þessari grein var svo til engin velta á tímum kórónuveirufaraldursins, en velta árið 2022 var 22% hærri en árið 2019 sem er síðasta árið fyrir faraldurinn.

Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 15. desember sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 1.107,5 milljarðar króna í september-október 2022 sem var 18,0% hækkun frá sama tímabili árið 2021. Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin hafa verið 1.113,2 milljarðar sem er 18,6% hækkun á milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum. Einnig er birt töluleg samantekt á því hvernig nokkrir undirflokkar breytast við endurskoðun birtra hagtalna.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina. Einnig er gott að skoða tölur um veltu í víðara samhengi og tengja þær við tölur um vöruviðskipti, launagreiðslur o.fl.

Talnaefni
Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu
Velta í öllum atvinnugreinum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.