Velta eykst í fiskeldi og sjávarútvegi
Samkvæmt virðisaukaskattskýrslum var velta í sjávarútvegi 15,1% meiri í september-október 2019 en á sama tímabili árið áður. Á síðasta 12 mánaða tímabili var velta í fiskeldi 99% hærri en næstu 12 mánuði þar á undan. Umsvif fiskeldis hafa aukist mikið undanfarin ár og er ársvelta greinarinnar nú á við helming af veltu í landbúnaði.
Minni velta í flugi
Velta í flutningum og geymslu var 8,1% lægri í september-október 2019 en á sama tímabili 2018. Þessi lækkun er vegna lækkunar veltu í flutningum með flugi (-10,6%) og lækkunar veltu í þjónustustarfsemi tengdri flutningum með flugi (-28,6%).
Hægir á byggingaframkvæmdum
Velta í „Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnslu hráefna úr jörðu“ var 1,3% hærri í september-október 2019 en sömu mánuði 2018 og er það mun minni vöxtur en hefur verið í þessari grein undanfarin ár.
Samdráttur í framleiðslu málma
Velta í framleiðslu málma var 20,6% minni í september-október 2019 en á sama tímabili 2018.
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum (milljarðar króna) | ||||||
Sept.-okt. 2018 | Sept.-okt. 2019 | Breyting, % | Nóv. 2017-okt. 2018 | Nóv. 2018-Okt. 2019 | Breyting, % | |
Alls án lyfjaframleiðslu¹ | 791 | 799 | 1,1 | 4.494 | 4.636 | 3,2 |
Landbúnaður og skógrækt² | ... | ... | ... | 52 | 51 | -0,2 |
A-031/C-102 Fiskveiðar og vinnsla sjávarafurða | 64 | 73 | 15,1 | 338 | 388 | 14,8 |
A-032 Fiskeldi | 3 | 5 | 47,6 | 13 | 26 | 98,7 |
C-24 Framleiðsla málma | 46 | 36 | -20,6 | 250 | 241 | -3,5 |
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma | 73 | 78 | 7,3 | 426 | 437 | 2,6 |
D/E Veitustarfsemi | 33 | 31 | -4,9 | 184 | 192 | 4,2 |
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hr | 68 | 68 | 1,3 | 349 | 367 | 5,1 |
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja | 24 | 23 | -4,6 | 168 | 148 | -12,0 |
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk | 46 | 49 | 7,0 | 222 | 260 | 17,2 |
G-4671 Olíuverslun | 25 | 26 | 2,8 | 133 | 147 | 10,5 |
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun | 64 | 68 | 7,0 | 364 | 394 | 8,1 |
G-47 Smásala | 79 | 82 | 4,4 | 471 | 495 | 5,1 |
H Flutningar og geymsla | 82 | 75 | -8,1 | 498 | 428 | -13,9 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 36 | 34 | -5,0 | 200 | 200 | 0,2 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 39 | 40 | 2,5 | 218 | 233 | 6,8 |
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum | 9 | 8 | -15,7 | 51 | 49 | -4,6 |
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur | 20 | 19 | -4,5 | 110 | 115 | 4,9 |
Erlend fyrirtæki sem selja rafræna þjónustu til einstaklinga á Íslandi | 1 | 2 | 11,9 | 9 | 10 | 11,4 |
Aðrar atvinnugreinar | 77 | 78 | 1,5 | 438 | 455 | 3,8 |
¹ Virðisaukaskattskyld velta er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein. | ||||||
² Margir bændur skila virðisaukaskattskýrslu hálfsárslega og hafa lengri skilafrest en aðrir. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar. |
Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 12. nóvember sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 817,7 milljarðar króna í júlí-ágúst 2019, sem var 0,8% hækkun frá sama tímabili árið 2018. Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin vera 818,7 milljarðar, sem er 1,0% hækkun milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum. Einnig er birt töluleg samantekt á því hvernig nokkrir undirflokkar breytast við endurskoðun birtra hagtalna.
Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar