FRÉTT FYRIRTÆKI 10. MAÍ 2016

Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi í janúar og febrúar 2016 nam 551 milljörðum króna, sem er 5% aukning miðað við sama tímabil árið 2015. Á síðustu 12 mánuðum er aukningin 9% samanborið við 12 mánuði þar áður.

Um síðustu áramót tóku í gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt , 50/1988, þ.a. nú eru nokkrar atvinnugreinar virðisaukaskattsskyldar sem áður voru undanþegnar. Þar ber helst að nefna farþegaflutninga aðra en áætlunarflutninga (undir bálk H) og þjónustu ferðaskrifstofa (undir bálki N). Þetta er að hluta til skýringin á mikilli aukningu á virðisaukaskattsskyldri veltu í þessum greinum, en einnig hafa umsvif þessara atvinnugreina aukist mikið undanfarin ár.

Um áramótin tóku einnig í gildi breytingar á vörugjöldum, m.a. hækkaði vörugjald á áfengi um leið og áfengi var fært úr efra þrepi virðisaukaskatts í neðra. Þar sem hér er birt velta án virðisaukaskatts þá hafði flutningur milli þrepa enginn áhrif á tölur. Hins vegar leggst virðisaukaskattur ofan á vörugjald og því veldur hækkun vörugjalds hækkun á virðisaukaskattsskyldri veltu. Hækkanir á vörugjaldi á áfengi valda því veltuaukningu í liðunum „Heild- og smásöluverslun“ og „Rekstur gististaða og veitingarekstur“.

Virðisaukaskattsvelta
  janúar-febrúar   mars-febrúar  
  2015 2016 % 2014-2015 2015-2016 %
Alls 523.358 550.863 5% 3.536.110 3.855.913 9%
01/02 Landbúnaður og skógrækt¹ ... ... ... 45.438 48.093 6%
03/10.2 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða 60.280 53.642 -11% 363.719 387.455 7%
C Framleiðsla, án 10.2, fiskvinnslu 104.676 95.787 -8% 674.796 699.439 4%
D/E Veitustarfsemi 27.763 27.277 -2% 162.349 167.102 3%
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu 21.554 28.554 32% 169.004 207.257 23%
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum 171.468 176.148 3% 1.150.041 1.225.681 7%
H Flutningar og geymsla 45.962 55.733 21% 338.184 389.452 15%
I Rekstur gististaða og veitingarekstur 14.170 18.166 28% 115.851 138.593 20%
J Upplýsingar og fjarskipti 25.872 28.406 10% 168.393 178.650 6%
L Fasteignaviðskipti og fasteignaleiga 9.151 10.080 10% 59.273 69.007 16%
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi 19.137 22.553 18% 127.038 144.333 14%
N Önnur leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta 10.214 17.217 69% 76.320 97.421 28%
Aðrir bálkar 11.303 15.479 37% 85.705 103.432 21%
¹Flestir bændur skila virðisaukaskatti hálfsárslega. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar.    
Þeir bændur sem skila virðisaukaskattsskýrslum hálfsárslega hafa lengri skilafrest en aðrir virðisaukaskattsgreiðendur.      
Því eru fyrstu tölur um virðisaukaskattskylda veltu í landbúnaði oft of lágar.            
Við birtingu í mars sl. kom fram að velta í landbúnaði hefði verið 2% árið 2015 en 2014, en skv. nýjustu tölum var veltan 6% hærri 2015 en árið áður.  

Talnaefni 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.