FRÉTT FYRIRTÆKI 14. SEPTEMBER 2016

Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu hefur verið breytt frá upprunalegri útgáfu. Ný fréttatilkynning var gefin út í staðinn.

Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi í maí og júní 2016 nam 772 milljörðum króna, sem er 10% aukning miðað við sama tímabil árið 2015. Á síðustu 12 mánuðum er aukningin 7% samanborið við 12 mánuði þar áður.

Um síðustu áramót tóku í gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt , 50/1988, þ.a. nú eru nokkrar atvinnugreinar virðisaukaskattsskyldar sem áður voru undanþegnar. Þar ber helst að nefna farþegaflutninga aðra en áætlunarflutninga (undir bálk H) og þjónustu ferðaskrifstofa (undir bálki N). Þetta er að hluta til skýringin á mikilli aukningu á virðisaukaskattsskyldri veltu í þessum greinum, en einnig hafa umsvif þessara atvinnugreina aukist mikið undanfarin ár.

Um áramótin tóku einnig í gildi breytingar á vörugjöldum, m.a. hækkaði vörugjald á áfengi um leið og áfengi var fært úr efra þrepi virðisaukaskatts í neðra. Þar sem hér er birt velta án virðisaukaskatts þá hafði flutningur milli þrepa enginn áhrif á tölur. Hins vegar leggst virðisaukaskattur ofan á vörugjald og því veldur hækkun vörugjalds hækkun á virðisaukaskattsskyldri veltu. Hækkanir á vörugjaldi á áfengi valda því veltuaukningu í liðunum „Heild- og smásöluverslun“ og „Rekstur gististaða og veitingarekstur“.

Virðisaukaskattsvelta
  maí-júní   júlí-júní  
  2015 2016 % 2014-2015 2015-2016 %
Alls 699.223 772.363 10% 3.698.745 3.961.222 7%
01/02 Landbúnaður og skógrækt¹ 15.315 16.569 8% 45.795 50.011 9%
03/10.2 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða 65.958 82.234 25% 388.411 395.867 2%
C Framleiðsla, án 10.2, fiskvinnslu 134.091 119.729 -11% 724.379 658.134 -9%
D/E Veitustarfsemi 28.287 26.255 -7% 169.470 164.533 -3%
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu 37.098 51.678 39% 180.116 232.031 29%
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum 217.687 233.018 7% 1.181.293 1.252.368 6%
H Flutningar og geymsla² 71.218 80.584 13% 352.435 409.627 16%
I Rekstur gististaða og veitingarekstur 25.408 30.976 22% 122.016 148.257 22%
J Upplýsingar og fjarskipti 29.235 32.738 12% 170.179 189.036 11%
L Fasteignaviðskipti og fasteignaleiga 10.555 12.435 18% 61.689 71.941 17%
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi 23.902 25.610 7% 132.194 151.814 15%
N Önnur leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta² 18.091 35.326 95% 81.048 128.882 59%
Aðrir bálkar 22.379 25.212 13% 89.719 108.721 21%
¹Flestir bændur skila virðisaukaskatti hálfsárslega. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar.
²Í ársbyrjun 2016 tóku gildi bryetingar á lögum um virðisaukaskatt, m.a. varð hluti farþegaflutninga (bálkur H) og þjónusta ferðaskrifstofa (bálkur N) virðisaukaskattsskyldur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.