FRÉTT FYRIRTÆKI 21. APRÍL 2026

Velta jókst í flestum af helstu atvinnugreinum landsins í janúar og febrúar 2026 samanborið við sömu mánuði árið 2025. Mest jókst velta í bílasölu, tækni- og hugverkaiðnaði (einkum í starfsemi tengdri gagnaverum) og sjávarútvegi og fiskeldi. Aftur á móti var töluverður samdráttur í framleiðslu málma auk þess sem nær óbreytt þróun var í ferðaþjónustu. Velta jókst umfram verðbólgu í um helmingi atvinnugreina en vísitala neysluverðs hækkaði um 5,2% á tímabilinu.

Velta í tækni- og hugverkaiðnaði (án lyfjaframleiðslu) var rúmlega 114 milljarðar króna í janúar og febrúar sem var um 20% meira en á sama tíma árið 2025. Verulegur vöxtur var í upplýsingatæknigreinum og jókst velta hlutfallslega mest í starfsemi á sviði upplýsingaþjónustu (gagnavinnslu, hýsingu, o.fl.) eða um 111%. Þá var einnig tæplega 38% vöxtur í meðal- og hátækniframleiðslu. Í hugbúnaðargerð jókst velta um 12% auk þess sem tæplega 9% vöxtur var í þjónustustarfsemi á sviði upplýsingaþjónustu. Í framleiðslu á tölvu-, rafeinda- og optískum vörum dróst velta hins vegar saman um 2%.

Í einkennandi greinum ferðaþjónustu stóð veltan í stað miðað við fyrra ár og var rúmlega 120 milljarðar króna. Samdráttur var í meirihluta ferðaþjónustugreina en um 55% vöxtur í bílaleigu hafði jákvæð áhrif á heildarniðurstöðuna ásamt tæplega 7% vexti hjá heilsulindum. Í veitingasölu og -þjónustu jókst velta um tæp 4% og 2% í farþegaflutningum á sjó, vötnum og ám. Rúmlega 22% samdráttur var í farþegaflutningum á landi og 9% í flugi. Þá var einnig um 10% samdráttur hjá ferðaskrifstofum og lítilsháttar minnkun á veltu gististaða um rúmlega 1%.

Velta í smásöluverslun þróaðist í takt við verðlag og jókst um rúmlega 5%. Þar af var um 8% vöxtur hjá stórmörkuðum og matvöruverslunum auk þess sem 9% vöxtur var í lyfjaverslun. Minni vöxtur var í smásölu á fatnaði og skóm (3%) og samdráttur hjá byggingarvöruverslunum (-2%). Í heildverslun jókst velta um aðeins 2%. Mikil veltuaukning var í sölu, viðgerðum og viðhaldi á vélknúnum ökutækjum eða 35% þar sem rúmlega 48% vöxtur var í bílasölu.

Velta í fasteignastarfsemi jókst um tæplega 7% og nam rúmum 27 milljörðum króna. Í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð var aðeins meiri vöxtur eða 9% þar sem um rúmlega 8% vöxtur var í bæði sérhæfðri byggingarstarfsemi og byggingu húsnæðis og þróun byggingarverkefna. Þá var einnig 25% vöxtur í mannvirkjagerð en sú grein er jafnan lítil í samanburði við hinar tvær. Ójöfn þróun var í öðrum útflutningsgreinum, það er sjávarútvegi og málmframleiðslu. Velta í framleiðslu málma dróst saman um 23% en þrátt fyrir mikla hækkun álverðs hafði minnkun útflutnings um 24% á tímabilinu og styrking krónunnar yfirgnæfandi áhrif á niðurstöðuna. Í sjávarútvegi og fiskeldi jókst velta aftur á móti umtalsvert eða um tæp 17% þar sem 16% vöxtur var í sjávarútvegi einum og sér en 25% í fiskeldi.

Um gögnin
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattsskýrslum eru bráðabirgðatölur. Allar tölur eru á nafnvirði nema annað sé tekið fram. Verðbólga fyrir tímabilið janúar-febrúar 2025 til janúar-febrúar 2026 var 5,2% miðað við meðalgengi vísitölu neysluverðs.

Rannsókn stendur yfir á grunngögnum um framleiðslu á lyfjum og efnum til lyfjagerðar. Að svo stöddu er því ekki unnt að birta tölur fyrir þá atvinnugrein. Þar að auki verða tölur fyrir tækni- og hugverkaiðnað, meðal- og hátækniframleiðslu og heildarveltu (alls og alls án landbúnaðar og skógræktar) birtar án veltu í lyfjaframleiðslu á meðan frekari skoðun á gögnunum fer fram. Þetta gildir um öll gögn frá núverandi tímabili aftur til ársins 2008.

Við birtingu síðustu fréttar í febrúar sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi (án landbúnaðar og lyfjaframleiðslu) talin hafa verið 1.318,8 milljarðar króna (3,7% hækkun miðað við fyrra ár) á tímabilinu nóvember-desember 2025. Nú hafa nýrri tölur borist og er velta á þessu tímabili talin hafa verið 1.293,6 milljarðar króna (1,8% hækkun miðað við fyrra ár).

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.