Velta jókst í flestum af helstu atvinnugreinum landsins í júlí og ágúst 2026 samanborið við sömu mánuði árið 2025. Mest jókst velta í málmframleiðslu og upplýsingatækni en lítils háttar samdráttur var í sjávarútvegi. 1 Velta jókst umfram verðbólgu í rúmlega helmingi atvinnugreina en vísitala neysluverðs hækkaði um 5,4% á tímabilinu.
Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu jókst um rúmlega 7% og mældist 252 milljarðar króna. Aukning var í nær öllum undirgreinum ferðaþjónustunnar. Tæplega 25% aukning var í farþegaflutningum á landi og 11% aukning í farþegaflutningum með flugi. Þá jókst velta heilsulinda um tæplega 14%. Í veitingasölu- og þjónustu var um 3% vöxtur og í rekstri gististaða um 10% aukning þrátt fyrir litlar breytingar á fjölda gistinátta í júlí og ágúst. Þá var 7% aukning í leigu á tómstundavörum, íþróttavörum og ökutækjum og 2% í farþegaflutningum á sjó, vötnum og ám. Hjá ferðaskrifstofum dróst velta hins vegar saman um tæplega 2% sem stafaði einkum af þjónustu tengdri ferðum erlendis (tæplega 4% vöxtur var í þjónustu tengdum ferðalögum innanlands).
Velta í tækni- og hugverkaiðnaði (án lyfjaframleiðslu) var 111 milljarðar króna sem var um 11% meira en á sama tíma árið 2025. Verulegur vöxtur var í upplýsingatæknigreinum tengdum gagnaverum og þá einkum í starfsemi á sviði upplýsingaþjónustu (gagnavinnslu, hýsingu, o.fl.) eða um 189%. Litlar breytingar voru í öðrum geirum tækni- og hugverkaiðnaðar. Um 1% vöxtur var í hugbúnaðargerð en 1% samdráttur í meðal- og hátækniframleiðslu þar sem velta dróst saman um 2% í framleiðslu á tölvu-, rafeinda- og optískum vörum.
Velta í málmframleiðslu jókst mikið á tímabilinu og nam rúmum 76 milljörðum króna. Það var um 41% meira en á sama tíma árið 2025 en þá var veltan tæplega 54 milljarðar. Heimsmarkaðsverð á áli var mun hærra á tímabilinu auk þess sem gengi krónunnar var lítið breytt og útflutt magn örlitlu meira en fyrir ári síðan. Í sjávarútvegi og fiskeldi var hins vegar samdráttur þrátt fyrir að velta í fiskeldi hafi aukist.1
Velta í smásöluverslun jókst um rúm 7% þar sem áframhaldandi vöxtur var hjá stórmörkuðum og matvöruverslunum (16%). Í lyfjaverslun var 7% aukning á veltu en samdráttur hjá byggingarvöruverslunum (-3%) og sérverslunum með fatnað, skó og leðurvörur (-1%). Velta í heildverslun jókst um tæp 5% þar sem um 15% vöxtur var í heildverslun með eldsneyti. Loks voru litlar breytingar í sölu, viðgerðum og viðhaldi á vélknúnum ökutækjum (1%) þar sem 2% samdráttur var í bílasölu.
Velta í fasteignastarfsemi jókst nokkuð mikið eða um tæp 10% og reyndist hún 35 milljarðar króna þar sem meginþorri veltunnar var borin uppi af leigu atvinnuhúsnæðis. Velta í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð breyttist hins vegar ívið minna og jókst um aðeins tæp 3%. Þar af stóð velta í byggingu húsnæðis og þróun byggingarverkefna í stað auk þess sem 4% vöxtur var í sérhæfðri byggingarstarfsemi. Loks var 12% aukning í mannvirkjagerð.
Um gögnin
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattsskýrslum eru bráðabirgðatölur. Allar tölur eru á nafnvirði nema annað sé tekið fram. Verðbólga fyrir tímabilið júlí-ágúst 2025 til júlí-ágúst 2026 var 5,4% miðað við meðalgengi vísitölu neysluverðs.
Rannsókn stendur yfir á grunngögnum um framleiðslu á lyfjum og efnum til lyfjagerðar. Að svo stöddu er því ekki unnt að birta tölur fyrir þá atvinnugrein. Þar að auki verða tölur fyrir tækni- og hugverkaiðnað, meðal- og hátækniframleiðslu og heildarveltu (alls og alls án landbúnaðar og skógræktar) birtar án veltu í lyfjaframleiðslu á meðan frekari skoðun á gögnunum fer fram. Þetta gildir um öll gögn frá núverandi tímabili aftur til ársins 2008.
Við birtingu síðustu fréttar í ágúst sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi (án landbúnaðar og lyfjaframleiðslu) talin hafa verið 1.342,5 milljarðar króna (6,2% hækkun miðað við fyrra ár) á tímabilinu maí-júní 2026. Nú hafa nýrri tölur borist og er velta á þessu tímabili talin hafa verið 1.347,3 milljarðar króna (6,5% hækkun miðað við fyrra ár).
1 Við birtingu þessarar fréttar höfðu ekki öll gögn borist frá fyrirtækjum í sjávarútvegi. Raunveruleg velta í greininni er því líklega hærri en hér er gefið til kynna og samdrátturinn því minni. Gögn verða uppfærð við næstu birtingu í desember.
Talnaefni
Velta í öllum atvinnugreinum
Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu
Lýsigögn
Atvinnugreinaflokkun