FRÉTT FYRIRTÆKI 28. ÁGÚST 2024

Velta dróst saman í tæplega helmingi atvinnugreina1 í maí til júní 2024 og í meirihluta greina var vöxturinn undir verðbólgu tímabilsins (6,0%). Af 12 stærstu atvinnugreinum landsins jókst velta umfram verðbólgu í einungis tveimur greinum; fasteignaviðskiptum og tækni- og hugverkaiðnaði. Mjög lítill vöxtur var í öðrum helstu greinum og minnkaði velta í heildverslun, framleiðslu málma og sölu á vélknúnum ökutækjum. Raunsamdráttur varð því í flestum atvinnugreinum hagkerfisins í maí og júní.

Velta í fasteignastarfsemi hélt áfram að aukast eða um alls 14% og reyndist 28 milljarðar króna á tímabilinu. Meginþorra hækkunarinnar mátti líkt og áður rekja til leigu atvinnuhúsnæðis en þó var einnig veruleg aukning í fasteignamiðlun. Ólíkt undanförnum misserum var ekki sambærilegur vöxtur í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð en velta í þeim greinum jókst um einungis 4% á milli ára; 5% vöxtur var í byggingu húsnæðis og þróun byggingarverkefna, 3% í sérhæfðri byggingastarfsemi og 8% samdráttur í mannvirkjagerð.

Velta í ferðaþjónustu var sömuleiðis lítil og mældist 189 milljarðar króna sem var einungis 4% aukning miðað við sama tíma árið 2023. Töluverður vöxtur var þó í farþegaflutningum með flugi (14%) og í þjónustu hjá ferðaskrifstofum um ferðalög erlendis (15%). Samdráttur var hins vegar í öðrum einkennandi greinum ferðaþjónustunnar, til dæmis í farþegaflutningum á landi (-14%), rekstri gististaða (-5%), leigu á ökutækjum (-3%) og þjónustu tengdum ferðalögum innanlands (-1%). Velta var óbreytt á milli ára í veitingasölu- og þjónustu.

Samdráttur var í helstu útflutningsgreinum. Velta í framleiðslu málma hélt áfram að dragast saman eða um 8% miðað við sama tímabil fyrir ári. Heimsmarkaðsverð á áli hækkaði örlítið á milli tímabila auk þess sem gengi krónunnar var á svipuðu reiki og árið áður. Samdráttinn í veltu álfyrirtækja mátti því heldur rekja til minni magnsölu. Þá dróst velta í sjávarútvegi saman um rúmlega 2% (50% vöxtur var í fiskeldi miðað við fyrra ár en vegna smæðar fiskeldis miðað við sjávarútveg var samanlögð aukning veltu í sjávarútvegi og fiskeldi einungis tæplega 1%).

Í tækni- og hugverkaiðnaði var jákvæður raunvöxtur eins og í fasteignastarfsemi en alls jókst velta um 8% í tæknigreinunum miðað við fyrra ár. Þrátt fyrir ágætan heildarvöxt var dreifingin innan atvinnugreinahópsins misjöfn. Mest jókst velta í meðal- og hátækniframleiðslu, eða um 20%, sem mátti einkum rekja til aukinnar lyfjaframleiðslu og framleiðslu á tækjum og vörum til lækninga. Samdráttur upp á 24% var hins vegar í framleiðslu á tölvu-, rafeinda- og optískum vörum. Þá var einnig miðlungs vöxtur í tölvutengdri þjónustu (6%) þar sem einkum stóð út úr 12% vöxtur í þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni. Hins vegar var velta í hugbúnaðargerð nær óbreytt eftir að hafa dregist nokkuð saman síðastliðin þrjú virðisaukaskattstímabil auk þess sem 11% samdráttur var í starfsemi á sviði upplýsingaþjónustu (gagnavinnsla, hýsing, o.fl.).

Sala á vélknúnum ökutækjum hélt áfram að dragast saman eða um 36% (29% sé viðhald og viðgerðir ökutækja talin með). Samdráttur var einnig í heildverslun um 2% sem rekja mátti til minni virkni í byggingarstarfsemi en alls dróst velta saman um 4% í heildverslun með timbur og byggingarefni og um 7% í heildverslun með járnvöru og lagnavörur. Smásöluverslun óx ögn betur eða um 5% þar sem velta hjá stórmörkuðum, matvöru- og lyfjaverslunum jókst nokkurn veginn í samræmi við verðbólgu, eða á bilinu 6-7%. Samdráttur upp á 2% var hins vegar hjá sérverslunum með fatnað og skó. Loks var óbreytt velta hjá byggingavöruverslunum (sem jafngilti neikvæðum raunvexti upp á -6%).

Um gögnin
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattsskýrslum eru bráðabirgðatölur. Allar tölur eru á nafnvirði nema annað sé tekið fram. Verðbólga fyrir tímabilið maí-júní 2023 til maí-júní 2024 var 6,0% miðað við meðalgengi vísitölu neysluverðs. Við birtingu síðustu fréttar í apríl sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi (án landbúnaðar) talin hafa verið 1.097,6 milljarðar króna (1,46% hækkun miðað við fyrra ár) á tímabilinu mars-apríl 2024. Nú hafa nýrri tölur borist og er velta á þessu tímabili talin hafa verið 1.102,8 milljarðar króna (1,94% hækkun miðað við fyrra ár).

Tölur í landbúnaði fyrir fyrri hluta árs eru að jafnaði taldar með veltu í maí-júní og seinni hluta árs með veltu í nóvember-desember. Ekki eru birtar tölur fyrir maí-júní 2024 í heild sinni fyrir landbúnaðargreinarnar „Ræktun nytjajurta og búfjárrækt, veiðar og tengd þjónustustarfsemi“ og „Skógrækt og skógarhögg“ þar sem tölur fyrir fyrri helming árs 2024 liggja ekki fyrir. Þar af leiðandi er ekki birt tala í flokknum „Alls“ enda gæfi það villandi mynd af heildarveltu. Aftur á móti eru birtar tölur í flokknum „Alls, án landbúnaðar og skógræktar“.

1 Margir bændur skila virðisaukaskattskýrslu hálfsárslega og hafa lengri skilafrest en aðrir. Ekki eru komnar tölur um veltu í landbúnaði og skógrækt fyrir fyrri helming árs 2024.

Talnaefni
Velta í öllum atvinnugreinum
Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.