FRÉTT FYRIRTÆKI 25. ÁGÚST 2026

Velta jókst í flestum af helstu atvinnugreinum landsins í maí og júní 2026 samanborið við sömu mánuði árið 2025. Mest jókst velta í upplýsingatækni, sjávarútvegi og málmframleiðslu auk þess sem töluverður vöxtur var í heildverslun. Aftur á móti var samdráttur í bílasölu og einkennandi greinum ferðaþjónustu. Velta jókst umfram verðbólgu í um helmingi atvinnugreina en vísitala neysluverðs hækkaði um 5,2% á tímabilinu.

Velta í útflutningsgreinum jókst töluvert á tímabilinu. Í sjávarútvegi og fiskeldi var um 25% vöxtur þar sem veltan jókst úr tæplega 87 milljörðum króna í 109 milljarða. Þar af var nærri 29% aukning í sjávarútvegi einum og sér en 3% vöxtur í fiskeldi. Þá jókst velta um 22% í framleiðslu málma en heimsmarkaðsverð á áli hækkaði mikið á fyrri hluta árs 2026 og vel umfram litlu sterkara gengi krónunnar og minnkun í útfluttu magni.

Velta í tækni- og hugverkaiðnaði (án lyfjaframleiðslu) var 109 milljarðar króna sem var um 8% meira en á sama tíma árið 2025. Verulegur vöxtur var í upplýsingatæknigreinum og jókst velta hlutfallslega mest starfsemi á sviði upplýsingaþjónustu (gagnavinnslu, hýsingu, o.fl.) eða um 122%. Þá var einnig tæplega 13% vöxtur í hugbúnaðargerð og rúmlega 13% í þjónustustarfsemi á sviði upplýsingaþjónustu. Í meðal- og hátækniframleiðslu jókst velta um 5% og þar af um 9% í framleiðslu á tölvu-, rafeinda- og optískum vörum.

Í einkennandi greinum ferðaþjónustu dróst velta saman um rúm 3% og mældist rúmlega 183 milljarðar króna. Megin ástæðan var samdráttur í farþegaflutningum með flugi (-5%) þar sem enn gætti áhrifa gjaldþrots flugfélagsins Play. Einnig dróst velta saman um tæplega 13% hjá ferðaskrifstofum og 9% í leigu á tómstundavörum, íþróttavörum og ökutækjum. Lítill vöxtur var í öðrum geirum ferðaþjónustunnar en velta jókst um tæp 4% í rekstri gististaða, 1% í veitingasölu og -þjónustu, 6% hjá heilsulindum og 2% í farþegaflutningum á landi. Aftur á móti var 13% aukning í farþegaflutningum á sjó, vötnum og ám (einkum hvalaskoðun).

Velta í heildverslun jókst töluvert eða um rúmlega 13% í 226 milljarða króna. Þar af var 21% vöxtur í heildverslun með eldsneyti auk þess sem mikill vöxtur var í heildverslun með fiskafurðir. Þá gætti einnig töluverðra áhrifa af innflutningi á búnaði til uppbyggingu vindorkuvers í Búrfelli. Smásöluverslun jókst um rúmlega 7% þar sem tæplega 17% veltuaukning var hjá stórmörkuðum og matvöruverslunum. Auk þess jókst velta um 8% í lyfjaverslun. Aftur á móti dróst hún saman um 5% hjá byggingarvöruverslunum og 1% í smásölu á fatnaði og skóm. Í sölu, viðgerðum og viðhaldi á vélknúnum ökutækjum dróst velta saman um 10% þar sem um 14% samdráttur var í bílasölu.

Velta byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð jókst um 4% en sú aukning var einkum borin uppi af sérhæfðri byggingarstarfsemi (8%) og mannvirkjagerð (20%). Velta í byggingu húsnæðis og þróun byggingarverkefna var lítið breytt á milli ára. Í fasteignastarfsemi jókst velta um rúmlega 8% sem að miklu leyti mátti rekja til leigu atvinnuhúsnæðis.

Um gögnin
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattsskýrslum eru bráðabirgðatölur. Allar tölur eru á nafnvirði nema annað sé tekið fram. Verðbólga fyrir tímabilið maí-júní 2025 til maí-júní 2026 var 5,2% miðað við meðalgengi vísitölu neysluverðs.

Rannsókn stendur yfir á grunngögnum um framleiðslu á lyfjum og efnum til lyfjagerðar. Að svo stöddu er því ekki unnt að birta tölur fyrir þá atvinnugrein. Þar að auki verða tölur fyrir tækni- og hugverkaiðnað, meðal- og hátækniframleiðslu og heildarveltu (alls og alls án landbúnaðar og skógræktar) birtar án veltu í lyfjaframleiðslu á meðan frekari skoðun á gögnunum fer fram. Þetta gildir um öll gögn frá núverandi tímabili aftur til ársins 2008.

Tölur í landbúnaði fyrir fyrri hluta árs eru að jafnaði taldar með veltu í maí-júní og seinni hluta árs með veltu í nóvember-desember. Ekki eru birtar tölur fyrir maí-júní 2026 fyrir landbúnaðargreinarnar „Ræktun nytjajurta og búfjárrækt, veiðar og tengd þjónustustarfsemi“ og „Skógrækt og skógarhögg“ þar sem tölur fyrir seinni helming árs 2025 liggja ekki fyrir. Þar af leiðandi er ekki birt tala í flokknum „Alls“ enda gæfi það villandi mynd af heildarveltu. Aftur á móti eru birtar tölur í flokknum „Alls, án landbúnaðar og skógræktar“.

Við birtingu síðustu fréttar í júní sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi (án landbúnaðar og lyfjaframleiðslu) talin hafa verið 1.268,7 milljarðar króna (8,9% hækkun miðað við fyrra ár) á tímabilinu mars-apríl 2026. Nú hafa nýrri tölur borist og er velta á þessu tímabili talin hafa verið 1.270,8 milljarðar króna (9,1% hækkun miðað við fyrra ár).

Endurskoðun hagtalna

Talnaefni
Velta í öllum atvinnugreinum
Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu
Lýsigögn
Atvinnugreinaflokkun

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.