FRÉTT FYRIRTÆKI 25. JÚNÍ 2025

Velta jókst í flestum atvinnugreinum landsins í mars og apríl 2025 samanborið við sömu mánuði árið 2024. Meðal helstu greina hagkerfisins var mest aukning í bílasölu, framleiðslu málma og fasteignastarfsemi. Þá var umtalsverður vöxtur í sjávarútvegi og flestum af einkennandi greinum ferðaþjónustu. Minni vöxtur var hins vegar í heildverslun og ákveðnum tæknigreinum. Í meirihluta atvinnugreina jókst velta umfram hækkun verðlags en vísitala neysluverðs hækkaði um 4,0% á tímabilinu.

Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustunnar jókst um rúmlega 7% á tímabilinu og nam tæplega 139 milljörðum króna. Þróunin var nokkuð misjöfn á milli greina en helst stóð upp úr 54% aukning í veltu hjá heilsulindum og tæplega 12% í bílaleigu. Einnig var um 10% vöxtur í þjónustu ferðaskrifstofa tengdum ferðalögum erlendis en á sama tíma aðeins 3% vöxtur í þjónustu ferðaskrifstofa tengdum ferðalögum innanlands. Þá jókst velta um tæplega 8% í farþegaflutningum með flugi og 7% í farþegaflutningum á sjó, vötnum og ám. Aftur á móti dróst hún saman um rúmlega 3% í farþegaflutningum á landi. Loks var lítill vöxtur í rekstri gististaða (5%) og veitingasölu- og þjónustu (2%).

Velta í fasteignastarfsemi jókst um tæplega 12% og reyndist um 29 milljarðar króna á tímabilinu. Nokkuð jafn vöxtur var í flestum geirum greinarinnar en meginþorra veltunnar má jafnan rekja til leigutekna af atvinnuhúsnæði. Í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð var nokkuð minni vöxtur eða rúmlega 5% og var veltan tæplega 105 milljarðar króna. Veltuaukningin var einkum borin uppi af tæplega 9% vexti í sérhæfðri byggingarstarfsemi en aðeins um 2% vöxtur var í byggingu húsnæðis og þróun byggingarverkefna.

Velta í tækni- og hugverkaiðnaði var tæplega 114 milljarðar króna í mars og apríl og jókst lítið á tímabilinu eða um rúmlega 2%. Þróunin var engu að síður misjöfn á milli greina og var til að mynda um 16% vöxtur í meðal- og hátækniframleiðslu sem einkum mátti rekja til 64% vaxtar í framleiðslu á lyfjum og efnum til lyfjagerðar. Þá var um 15% vöxtur í framleiðslu á tölvu-, rafeinda- og optískum vörum. Samdráttur í hátækniþjónustu (-4%) dróg hins vegar niður heildarniðurstöðuna þar sem velta dróst töluvert saman í starfsemi á sviði upplýsingaþjónustu (gagnavinnslu, hýsingu, o.fl.) (-38%). Í annarri þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni var þó um 13% vöxtur og þar af um 16% í hugbúnaðargerð.

Áframhaldandi vöxtur var í framleiðslu málma og jókst velta þar um tæplega 15% en heimsmarkaðsverð á áli var nokkuð hærra á tímabilinu mars til apríl 2025 miðað við sömu mánuði árið 2024. Útflutt magn jókst lítillega og gengi krónunnar var einnig sterkara. Í öðrum helstu útflutningsgreinum var einnig töluverður vöxtur og jókst velta um rúmlega 9% í sjávarútvegi og fiskeldi. Þar af var nær 11% aukning í sjávarútvegi þar sem veltan nam 90 milljörðum króna en um 7% samdráttur var hins vegar í fiskeldi (en velta þar var einungis sex milljarðar króna).

Velta í sölu, viðgerðum og viðhaldi á vélknúnum ökutækjum jókst aftur mikið eða um 20% og þar af var rúmlega 26% vöxtur í bílasölu. Í smásöluverslun var einnig ágætur vöxtur eða um 7% þar sem velta jókst um nærri 35% í lyfjaverslun. Tæplega 7% vöxtur var hjá stórmörkuðum og matvöruverslunum en öðru máli gegndi um sérverslanir þar sem velta jókst um 2% hjá byggingarvöruverslunum og dróst saman um 2% hjá fata- og skóbúðum. Loks jókst velta í heildverslun um aðeins rúmlega 1% en tæplega 14% samdráttur var í heildverslun með eldsneyti.

Um gögnin
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattsskýrslum eru bráðabirgðatölur. Allar tölur eru á nafnvirði nema annað sé tekið fram. Verðbólga fyrir tímabilið mars-apríl 2024 til mars-apríl 2025 var 4,0% miðað við meðalgengi vísitölu neysluverðs. Við birtingu síðustu fréttar í febrúar sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi (án landbúnaðar) talin hafa verið 1.094,8 milljarðar króna (8,9% hækkun miðað við fyrra ár) á tímabilinu janúar-febrúar 2025. Nú hafa nýrri tölur borist og er velta á þessu tímabili talin hafa verið 1.100,0 milljarðar króna (9,6% hækkun miðað við fyrra ár).

Talnaefni
Velta í öllum atvinnugreinum
Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.