FRÉTT FYRIRTÆKI 18. DESEMBER 2025

Velta jókst lítillega í flestum atvinnugreinum landsins í september og október 2025 samanborið við sömu mánuði árið 2024. Í flestum af helstu greinum hagkerfisins var vöxturinn um eða rétt yfir hækkun verðlags, en vísitala neysluverðs hækkaði um 4,2% á tímabilinu. Mest jókst velta í tæknigeiranum þar sem aukinn vöxtur í upplýsingatækni, nánar tiltekið í starfsemi tengdri gagnaverum, var yfirgnæfandi. Þá var lítill vöxtur í flestum greinum ferðaþjónustunnar og samdráttur í sjávarútvegi og framleiðslu málma.

Velta í tækni- og hugverkaiðnaði (án lyfjaframleiðslu) var tæplega 140 milljarðar króna í september og október sem var um 28% meira en á sama tíma árið 2024. Töluverður vöxtur var í upplýsingatæknigreinum og jókst velta hlutfallslega mest í starfsemi á sviði upplýsingaþjónustu (gagnavinnslu, hýsingu, o.fl.) eða um tæplega 262% sem einkum mátti rekja til aukinnar veltu af starfsemi tengdri gagnaverum. Þá var einnig nærri 39% veltuaukning í framleiðslu á tölvu-, rafeinda- og optískum vörum. Í þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni var svo tæplega 16% vöxtur og ríflega 12% aukning veltu í hugbúnaðargerð.

Í einkennandi greinum ferðaþjónustu jókst velta um aðeins tæp 3%. Mestur var vöxturinn hjá heilsulindum eða um 15% og í farþegaflutningum á sjó, vötnum og ám um ríflega 19%. Lítill vöxtur var hins vegar í öðrum greinum ferðaþjónustunnar. Til að mynda var aðeins um 3% veltuaukning hjá ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggjendum, 2% í veitingasölu- og þjónustu og 7% í bílaleigu (og leigu á öðrum tómstunda- og íþróttavörum). Óbreytt velta var í rekstri gististaða en gistinóttum ferðamanna á hótelum tók að fækka í október.

Velta í heild- og smásöluverslun var nokkurn veginn í takt við þróun verðlags. Í heildverslun jókst velta um tæplega 5% þar sem um 15% samdráttur var í heildverslun með eldsneyti. Í smásöluverslun jókst velta sömuleiðis um 5% en þar var tæplega 10% vöxtur hjá stórmörkuðum og matvöruverslunum auk þess sem velta í lyfjaverslun hélt áfram að aukast eða um tæplega 34%. Samdráttur var hins vegar hjá byggingarvöruverslunum (-5%) og sérverslunum með fatnað og skó (-2%). Nokkuð meiri vöxtur var í sölu, viðgerðum og viðhaldi á vélknúnum ökutækjum eða 11% þar sem tæplega 14% aukning var á veltu í bílasölu.

Velta í fasteignastarfsemi jókst um 8% og reyndist tæplega 32 milljarður á tímabilinu sem að mestu mátti rekja til aukinna leigutekna af atvinnuhúsnæði. Í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð var aftur á móti lítill vöxtur eða tæplega 4% og var veltan um 128 milljarðar króna. Þar var óbreytt velta í byggingu húsnæðis og þróun byggingarverkefna en um 7% vöxtur í sérhæfðri byggingarstarfsemi (einkum undirbúningsvinnu á byggingarsvæðum, tilraunaborunum, borvinnu og pípulagningum) og 13% í annarri mannvirkjagerð.

Velta í útflutningsgreinum, það er sjávarútvegi og málmframleiðslu, dróst saman í september og október. Í framleiðslu málma var rúmlega 9% samdráttur en þrátt fyrir aukið útflutt magn og lítilsháttar hækkun álverðs á heimsmörkuðum var gengi krónunnar töluvert sterkara en fyrir ári með þar til gerðum áhrifum á veltu. Í sjávarútvegi og fiskeldi var velta 3% minni en á síðasta ári þar sem tæplega 2% samdráttur var í sjávarútvegi og nær 11% minnkun á veltu í fiskeldi.

Um gögnin
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattsskýrslum eru bráðabirgðatölur. Allar tölur eru á nafnvirði nema annað sé tekið fram. Verðbólga fyrir tímabilið september-október 2024 til september-október 2025 var 4,2% miðað við meðalgengi vísitölu neysluverðs.

Rannsókn stendur yfir á grunngögnum um framleiðslu á lyfjum og efnum til lyfjagerðar. Að svo stöddu er því ekki unnt að birta tölur fyrir þá atvinnugrein og atvinnugreinahópinn meðal- og hátækniframleiðsla. Þar að auki verða tölur fyrir tækni- og hugverkaiðnað og heildarveltu (alls og alls án landbúnaðar og skógræktar) birtar án veltu í lyfjaframleiðslu á meðan frekari skoðun á gögnunum fer fram. Þetta gildir um öll gögn frá núverandi tímabili aftur til ársins 2008.

Við birtingu síðustu fréttar í október sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi (án landbúnaðar og lyfjaframleiðslu) talin hafa verið 1.287,7 milljarðar króna (2,4% hækkun miðað við fyrra ár) á tímabilinu júlí-ágúst 2025. Nú hafa nýrri tölur borist og er velta á þessu tímabili talin hafa verið 1.293,5 milljarðar króna (2,4% hækkun miðað við fyrra ár).

Talnaefni
Velta í öllum atvinnugreinum
Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.