Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, fyrir utan lyfjaframleiðslu, var 4.594 milljarðar á tímabilinu frá mars 2018 til febrúar 2019, sem er 7,4% hækkun miðað við næstu 12 mánuði þar á undan. Á tímabilinu janúar-febrúar 2019 var veltan 673 milljarðar, eða 8,5% hærri en sömu mánuði árið áður. Á þessu tímabili jókst velta mest í heild- og umboðssölu með fisk (39,6%) og í sjávarútvegi (34,7%). Velta lækkaði meðal annars í flutningum og geymslu (-9,7%); sölu og viðhaldi á vélknúnum ökutækjum (-7,8%); bílaleigu (-4,7%).
Virðisaukaskattsvelta (milljarðar króna) | ||||||
jan.-feb. 2018 | jan.-feb. 2019 | Breyting, % | mars 2017-feb. 2018 | mars 218-feb. 2019 | Breyting, % | |
Alls án lyfjaframleiðslu¹ | 620 | 673 | 8,5 | 4.276 | 4.594 | 7,4 |
Landbúnaður og skógrækt² | 2 | 2 | ... | 50 | 51 | 1,8 |
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða | 50 | 67 | 34,7 | 342 | 375 | 9,9 |
C-24 Framleiðsla málma | 41 | 43 | 5,5 | 228 | 256 | 12,6 |
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma | 59 | 62 | 5,9 | 411 | 436 | 6,0 |
D/E Veitustarfsemi | 30 | 32 | 5,9 | 172 | 189 | 9,9 |
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr j | 43 | 47 | 9,0 | 329 | 361 | 9,7 |
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja | 24 | 22 | -7,8 | 176 | 161 | -8,6 |
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk | 31 | 44 | 39,6 | 202 | 240 | 18,6 |
G-4671 Olíuverslun | 16 | 17 | 10,8 | 124 | 130 | 4,8 |
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun | 53 | 58 | 9,8 | 348 | 373 | 7,1 |
G-47 Smásala | 66 | 70 | 6,5 | 458 | 481 | 5,0 |
H Flutningar og geymsla | 65 | 59 | -9,7 | 469 | 488 | 3,9 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 24 | 24 | -0,6 | 192 | 197 | 2,6 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 32 | 35 | 9,2 | 200 | 227 | 13,2 |
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum | 6 | 6 | -4,7 | 52 | 51 | -1,0 |
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur | 13 | 15 | 12,2 | 103 | 114 | 10,9 |
Erlend fyrirtæki sem selja rafræna þjónustu til einstaklinga á Íslandi | 1 | 2 | 26,6 | 7 | 9 | 20,4 |
Aðrar atvinnugreinar | 63 | 67 | 6,8 | 412 | 456 | 10,5 |
¹ Virðisaukaskattskyld velta er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein. ² Margir bændur skila virðisaukaskattskýrlsu hálfsárslega. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar. |
Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 19. mars sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 807,6 milljarðar króna í nóvember og desember 2018, sem var 5,7% hækkun frá sömu mánuðum árið 2017. Nú hafa nýrri tölur borist og veltan, á þessu tímabili, er talin vera 812,2 milljarðar, sem er 6,3% hækkun milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum.
Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar