Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Velta í farþegaflutningum milli landa með flugi var 25% lægri í júlí-ágúst 2019 en á sama tímabili 2018. Þrátt fyrir samdrátt í flugi var velta í öðrum einkennandi greinum ferðaþjónustu nánast óbreytt milli ára, en lækkunin var 0,4% frá júlí-ágúst 2018 til sama tímabils 2019.
Velta eykst í sjávarútvegi
Velta jókst mest í sjávarútvegi og tengdum greinum. Velta í sjávarútvegi var 16,8% meiri í júlí-ágúst 2019 en á sama tímabili árið áður. Á sama tíma jókst velta í heild- og umboðsverslun með fisk um 18,2%.
Bílasala og bílaviðgerðir
Velta í sölu og viðhaldi vélknúinna ökutækja var 13,6% lægri í júlí-ágúst 2019 en sömu mánuði 2018.
Virðisaukaskattsvelta (milljarðar króna) | ||||||
Júlí-ágúst 2018 | Júlí-ágúst 2019 | Breyting, % | Sept. 2017-ágúst 2018 | Sept. 2018-ágúst 2019 | Breyting, % | |
Alls án lyfjaframleiðslu¹ | 811 | 818 | 0,8 | 4.445 | 4.627 | 4,1 |
Landbúnaður og skógrækt² | ... | ... | ... | 51 | 52 | 0,4 |
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða | 56 | 65 | 16,8 | 354 | 401 | 13,4 |
C-24 Framleiðsla málma | 44 | 38 | -13,4 | 243 | 251 | 3,0 |
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma | 72 | 71 | -1,5 | 422 | 432 | 2,2 |
D/E Veitustarfsemi | 30 | 30 | -0,5 | 181 | 194 | 7,2 |
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hr | 63 | 66 | 4,8 | 343 | 367 | 7,0 |
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja | 29 | 25 | -13,6 | 170 | 149 | -12,3 |
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk | 33 | 39 | 18,2 | 216 | 257 | 18,8 |
G-4671 Olíuverslun | 29 | 32 | 9,4 | 132 | 147 | 11,2 |
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun | 61 | 68 | 11,6 | 360 | 389 | 8,2 |
G-47 Smásala | 84 | 89 | 7,0 | 469 | 492 | 4,9 |
H Flutningar og geymsla | 110 | 88 | -20,8 | 498 | 435 | -12,6 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 48 | 48 | -0,1 | 198 | 202 | 1,7 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 33 | 35 | 5,9 | 214 | 232 | 8,3 |
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum | 13 | 12 | -3,7 | 50 | 51 | 0,7 |
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur | 29 | 29 | 2,1 | 107 | 116 | 7,9 |
Erlend fyrirtæki sem selja rafræna þjónustu til einstaklinga á Íslandi | 1 | 1 | -3,4 | 9 | 9 | 9,0 |
Aðrar atvinnugreinar | 73 | 77 | 6,5 | 427 | 453 | 6,2 |
¹ Virðisaukaskattskyld velta er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein. | ||||||
² Margir bændur skila virðisaukaskattskýrslu hálfsárslega og hafa lengri skilafrest en aðrir. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar. |
Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 6. september sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 803,4 milljarðar króna í maí-júní 2019, sem var 1,1% lækkun frá sama tímabili árið 2018. Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin vera 805,3 milljarðar, sem er 0,8% lækkun milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum. Einnig er birt töluleg samantekt á því hvernig nokkrir undirflokkar breytast við endurskoðun birtra hagtalna.
Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar