Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, fyrir utan lyfjaframleiðslu, var 722 milljarðar í mars og apríl 2019, eða 3,9% hærri en sömu mánuði árið áður.
Velta eykst í útflutningsgreinum
Velta jókst mest í útflutningsgreinum, s.s. sjávarútvegi (15,7%), framleiðslu málma (13,9%) og heild- og umboðsverslun með fisk (13,0%).
Hægist á byggingageiranum
Nú hægir á byggingaframkvæmdum. Velta í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð hækkaði um 4,8%.
Minni bílasala
Velta í flokknum „sala og viðhald vélknúinna ökutækja“ lækkaði um 9,9%, vegna 14% lækkunar veltu í bílasölu.
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Velta í farþegaflutningum milli landa með flugi var 26% lægri í mars og apríl 2019 en sömu mánuði 2018. Á þessu tímabili hættu tvö flugfélög starfsemi, Primera Air í október 2018 og WOW air í mars 2019.
Velta í gistiþjónustu var nánast óbreytt milli ára (+0,4%) en velta í veitingarekstri lækkaði lítillega (-3,3%).
Velta jókst hjá ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggjendum (8,0%). Hjá ferðaskrifstofum sem selja ferðir erlendis jókst velta um 0,7% en hjá ferðaskrifstofum sem selja ferðir á Íslandi jókst velta um 9,8%.
Velta lækkaði í öðrum einkennandi greinum ferðaþjónustu: bílaleigu (-4,4%), farþegaflutningum á landi ( 7,0%) og farþegaflutningum á sjó og vötnum ( 7,5%).
Virðisaukaskattsvelta (milljarðar króna) | ||||||
Mars-apríl 2018 | Mars-apríl 2019 | Breyting, % | Maí 2017-apríl 2018 | Maí 2018-apríl 2019 | Breyting, % | |
Alls án lyfjaframleiðslu¹ | 696 | 722 | 3,9 | 4.324 | 4.623 | 6,9 |
Landbúnaður og skógrækt² | 2 | 2 | ... | 51 | 52 | 2,0 |
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða | 62 | 72 | 15,7 | 344 | 385 | 11,9 |
C-24 Framleiðsla málma | 38 | 43 | 13,9 | 228 | 262 | 14,8 |
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma | 65 | 66 | 1,4 | 413 | 435 | 5,2 |
D/E Veitustarfsemi | 30 | 33 | 8,1 | 174 | 192 | 10,2 |
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 51 | 53 | 4,8 | 334 | 364 | 8,8 |
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja | 27 | 25 | -9,9 | 175 | 158 | -9,4 |
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk | 42 | 48 | 13,0 | 211 | 246 | 16,6 |
G-4671 Olíuverslun | 19 | 20 | 5,8 | 124 | 131 | 5,9 |
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun | 58 | 62 | 7,4 | 353 | 379 | 7,2 |
G-47 Smásala | 74 | 76 | 3,2 | 464 | 483 | 4,2 |
H Flutningar og geymsla | 74 | 63 | -15,0 | 475 | 476 | 0,1 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 27 | 27 | -1,7 | 193 | 197 | 2,2 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 36 | 36 | 0,8 | 204 | 227 | 11,2 |
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum | 7 | 6 | -4,4 | 51 | 51 | -1,2 |
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur | 14 | 15 | 8,0 | 103 | 115 | 11,5 |
Erlend fyrirtæki sem selja rafræna þjónustu til einstaklinga á Íslandi | 1 | 1 | 37,4 | 8 | 9 | 21,6 |
Aðrar atvinnugreinar | 69 | 75 | 8,0 | 419 | 462 | 10,2 |
1Virðisaukaskattskyld velta er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein.
2Margir bændur skila virðisaukaskattskýrslu hálfsárslega. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar.
Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 14. maí sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 673,1 milljarðar króna í janúar og febrúar 2018, sem var 8,5% hækkun frá sömu mánuðum árið 2018. Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin vera 674,2 milljarðar, sem er 8,7% hækkun milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum.
Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar