Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, fyrir utan lyfjaframleiðslu, var 4.491 milljarðar á tímabilinu nóvember 2017 til október 2018, sem er 8,5% hækkun miðað við næstu 12 mánuði þar á undan.

Á tímabilinu september-október 2018 var veltan 788 milljarðar eða 6,2% hærri en sömu mánuði árið áður. Á sama tímabili jókst velta í framleiðslu málma um 17,4%, velta í bílaleigu um 17,4% og velta í smásölu um 4,4%. Velta í sölu og viðhaldi vélknúinna ökutækja lækkaði um 7,3% og velta í sjávarútvegi lækkaði um 6,4%.

Virðisaukaskattsvelta (milljarðar króna)
  Sept.-okt. 2017 Sept.-okt. 2018 Breyting, % Nóv. 2016-okt. 2017 Nóv. 2017-okt. 2018 Breyting, %
Alls án lyfjaframleiðslu¹7427886,2 4.1394.4918,5
A-01/A-02 Landbúnaður og skógrækt² ... ... ...51 511,1
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða7167-6,4 31735010,5
C-24 Framleiðsla málma394617,4 21625015,7
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma69735,3 4024276,3
D/E Veitustarfsemi293312,8 1681849,5
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr j61679,7 3183499,8
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja2624-7,3 170167-1,4
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk404512,8 19222115,1
G-4671 Olíuverslun24241,3 1211296,1
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun59637,0 3453604,6
G-47 Smásala76804,4 4484735,7
H Flutningar og geymsla8282-0,6 45049710,5
I Rekstur gististaða og veitingarekstur34352,6 1901953,0
J Upplýsingar og fjarskipti35389,5 19521711,4
L Fasteignaviðskipti14159,4 80878,3
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum8917,4 50524,5
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur182013,1 1021108,1
Aðrar atvinnugreinar546520,5 32536913,4

Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar í nóvember 2018 var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 810,8 milljarðar króna í júlí og ágúst 2018, sem var 8,8% hækkun frá sömu mánuðum árið 2017. Nú hafa nýrri tölur borist og velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, á þessu tímabili er talin vera 811,9 milljarðar, sem er 9,0% hækkun milli ára. Fjallað er um endurskoðun hagtalna í lýsigögnum og tölulegar upplýsingar um breytingar á áður útgefnum hagtölum eru í endurskoðun hagtalna.

Aðrar hagtölur
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar