FRÉTT IÐNAÐUR 01. JÚLÍ 2010

Heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2009 var 574 milljarðar króna sem er aukning um rúma 28 milljarða króna eða 5,3% frá árinu 2008. Á sama tíma hækkaði vísitala framleiðsluverðs um 11,4% og hefur því heildarverðmæti seldra framleiðsluafurða dregist saman um 6,1% að raungildi. Framleiðsla fiskafurða og framleiðsla á málmum vega sem fyrr þyngst, þannig námu fiskafurðir 34,8% af heildarverðmæti og framleiðsla málma 33,4%. Heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2009 án fiskafurða og framleiðslu málma nam tæplega 183 milljörðum króna og dróst saman um 4 milljarða frá fyrra ári.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í Hagtíðindum sem Hagstofa Íslands gefur út í dag um verðmæti seldra framleiðsluvara árið 2009.

Verðmæti seldra framleiðsluvara 2009 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.