FRÉTT IÐNAÐUR 14. JÚNÍ 2013

Verðmæti seldra framleiðsluvara árið 2012 var 750 milljarðar króna sem er aukning um 30,4 milljarða króna eða 4,2% frá árinu 2011. Á sama tíma hækkaði vísitala framleiðsluverðs um 1,1% og hefur því verðmæti seldra framleiðsluafurða aukist um 3,1% að raungildi. Framleiðsla málma og framleiðsla á fiskafurðum vega sem fyrr þyngst, þannig nam framleiðsla á fiskafurðum 35,7% af heildarverðmæti árið 2012 og framleiðsla málma 32,7%. Verðmæti seldra framleiðsluvara án fiskafurða og framleiðslu málma nam tæpum 237 milljörðum  króna á síðasta ári og jókst um tæpa 21,8 milljarða eða um 10% frá fyrra ári.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum hagtíðindum Hagstofu Íslands varðandi verðmæti seldra framleiðsluvara árið 2012.

Verðmæti seldra framleiðsluvara 2012 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.