FRÉTT IÐNAÐUR 04. JÚNÍ 2015

Verðmæti seldra framleiðsluvara árið 2014 var 733 milljarðar króna sem er samdráttur um 9,6 milljarða króna eða 1,3% frá árinu 2013. Framleiðsla málma og framleiðsla á fiskafurðum vega sem fyrr þyngst, þannig nam framleiðsla á fiskafurðum 31,4% af heildarverðmæti árið 2014 en var 34,5% árið 2013. Framleiðsla málma nam 28,4% árið 2014 en var 30,1% árið 2013. Verðmæti seldra framleiðsluvara án fiskafurða og framleiðslu málma nam tæpum 294 milljörðum króna á síðasta ári og jókst um tæpa 31,7 milljarða eða um 12,1% frá fyrra ári.

Verðmæti framleiðsluvara 2013-2014
  2013 2014
Verðmæti eru í milljónum króna Verðmæti Hlutfall Verðmæti Hlutfall
         
Alls 741.471 100,0 733.249 100,0
08 Nám og vinnsla annarra hráefna úr jörðu 3.000 0,4 3.653 0,5
10/11 Matvæla- og drykkjarvöruframleiðsla 380.363 51,3 343.689 46,9
13 Framleiðsla á textílvörum 3.618 0,5 3.501 0,5
14/15 Framleiðsla á fatnaði, leðri og leðurvörum 1.498 0,2 1.561 0,2
16 Framleiðsla á viði og viðarvörum 3.086 0,4 2.954 0,4
17 Framleiðsla á pappír og pappírsvöru 3.364 0,5 3.674 0,5
18 Prentun og fjölföldun upptekins efnis 9.982 1,3 12.473 1,7
20/21 Framleiðsla á efnum og efnavörum; lyfjum 16.672 2,2 26.814 3,7
22 Framleiðsla á gúmmí- og plastvörum 8.015 1,1 8.810 1,2
23 Framleiðsla á  vörum úr málmlausum steinefnum 10.222 1,4 13.217 1,8
24 Framleiðsla málma 223.548 30,1 208.567 28,4
25 Framleiðsla á málmvörum, að undanskildum vélum og búnaði 14.520 2,0 19.194 2,6
26/27 Framleiðsla á tölvu-, rafeinda- og rafbúnaði 15.133 2,0 14.272 1,9
28 Framleiðsla á öðrum ótöldum vélum og tækjum 18.668 2,5 26.515 3,6
29/30 Framleiðsla á farartækjum 2.121 0,3 2.203 0,3
31 Framleiðsla á húsgögnum og innréttingum 4.067 0,5 5.134 0,7
32 Framleiðsla, ót.a. 7.819 1,1 11.057 1,5
33 Viðgerðir og uppsetning vélbúnaðar og tækja 15.776 2,1 25.962 3,5

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.