Hagtíðindaheftið Vísitala byggingarkostnaðar 2007 er komið út. Í heftinu eru birtar töflur um breytingar á byggingarvísitölu síðustu 12 mánuði.
Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði um 6,3% frá desember 2006 til jafnlengdar árið 2007. Vinnuliðir vísitölunnar hækkuðu um 5,2% (áhrif á vísitölu 2,7%) og efnisliðir hækkuðu um 7,6% (3,6%).
Vísitala byggingarkostnaðar 2007 - Hagtíðindi
Talnaefni