FRÉTT IÐNAÐUR 20. NÓVEMBER 2009

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan nóvember 2009 er 500,7 stig (júní 1987=100) sem er hækkun um 0,7% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í desember 2009.

Vinnuliðir hækkuðu um 2,9% (áhrif á vísitölu 0,9%) vegna samkomulags Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands frá 25. júní. Efnisliðir lækkuðu um 0.4%
(-0,2%).

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 4,6%.

Í janúar 2010 verður vísitala byggingarkostnaðar birt á nýjum grunni (janúar 2010 = 100). Gerð verður nánari grein fyrir grunnskiptunum og breytingum sem þeim fylgja við birtingu vísitölunnar í desember 2009.

Breytingar vísitölu byggingarkostnaðar 2008-2009
Vísitala  Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Gildistími júlí 1987=100 Útreikn- tími júní 1987=100 Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2008
Desember 478,8 489,6 2,3 30,7 43,0 30,9 29,6
2009
Janúar 489,6 490,1 0,1 1,2 24,7 23,6 28,6
Febrúar 490,1 492,5 0,5 6,0 11,9 24,8 27,6
Mars 492,5 490,7 -0,4 -4,3 0,9 20,1 21,7
Apríl 490,7 474,2 -3,4 -33,7 -12,4 4,5 13,9
Maí 474,2 474,9 0,2 1,8 -13,5 -1,6 11,8
Júní 474,9 477,9 0,6 7,9 -10,0 -4,7 11,7
Júlí 477,9 486,4 1,8 23,6 10,7 -1,5 10,3
Ágúst 486,4 492,1 1,2 15,0 15,3 -0,2 11,5
September 492,1 495,3 0,7 8,1 15,4 1,9 10,6
Október 495,3 497,0 0,3 4,2 9,0 9,8 7,2
Nóvember 497,0 500,7 0,7 9,3 7,2 11,2 4,6
Desember 500,7 . . . . . .

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.