FRÉTT IÐNAÐUR 21. JANÚAR 2010

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð miðað við nýjan grunn um miðjan janúar 2010 er 101,1 stig (desember 2009=100) sem er hækkun um 1,1% frá fyrri mánuði. Þar af hafði hækkun virðisaukaskatts úr 24,5% í 25,5%  0,6% áhrif á vísitöluna. Vísitalan gildir í febrúar 2010. Vísitalan miðað við eldri grunn (júní 1987=100)  er 506,6 stig í febrúar 2010. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,4%.

Vísitala byggingarkostnaðar er nú birt á nýjum grunni miðað við nýtt vísitöluhús. Ítarlega verður fjallað um grunnskiptin og nýja vísitöluhúsið í Hagtíðindaheftinu „Vísitala byggingarkostnaðar á nýjum grunni“ sem Hagstofan mun gefa út 8. febrúar næstkomandi.

Breytingar hafa verið gerðar á framsetningu undirvísitalna við grunnskiptin. Nú eru birtar undirvísitölur niður á byggingarstig, samkvæmt staðli ÍST 51 frá 2001, sem koma í stað undirvísitalna samkvæmt eldri áfangaskiptingu. Birtar eru vísitölur fyrir aðföng sem skiptast í íslenskt byggingarefni, innflutt byggingarefni, vinnu og einnig vélar, flutning og orkunotkun. Þá hefur skilgreining á undirvísitölum faggreina verið endurskoðuð og vogir fyrir hverja undirvísitölu verða birtar mánaðarlega.

Sundurliðað talnaefni samkvæmt eldri framsetningu verður uppfært í fjóra mánuði, en þeirri birtingu verður þá hætt. Útreikningi á vísitölu iðnaðarhúsnæðis verður hætt á sama tíma.

Vísitölur miðað við eldri grunna og rúmmetra- og fermetraverð í vísitöluhúsinu verða framreiknuð með nýju byggingarvísitölunni.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.