FRÉTT IÐNAÐUR 20. DESEMBER 2004

Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan desember, er 304,7 stig (júní 1987=100) og lækkar um 0,03% frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyrir janúar. Samsvarandi vísitala miðuð við eldri grunn (desember 1982=100) er 975 stig.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,9%.
     Árið 2004 var vísitala byggingarkostnaðar að meðaltali 4,3% hærri en árið 2003.

Talnaefni 
 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.