Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan apríl, er 293,3 stig (júní 1987=100) og hækkar um 0,38% frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyrir maí. Samsvarandi vísitala miðuð við eldri grunn (desember 1982=100) er 938 stig.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 2,7%.
Talnaefni