FRÉTT IÐNAÐUR 21. APRÍL 2009

Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð um miðjan apríl 2009, er 474,2 stig (júní 1987=100) sem er lækkun um 3,4% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í maí 2009.

Samkvæmt lögum nr. 10/2009 frá 11. mars 2009 er virðisaukaskattur af vinnu á byggingarstað og þjónustu hönnuða og eftirlitsaðila endurgreiddur tímabundið að fullu frá 1. mars 2009. Vinnuliðir vísitölunnar lækkuðu við þetta um 9,5% (áhrif á vísitölu -3,1%).

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 13,9%.

Breytingar vísitölu byggingarkostnaðar 2008-2009
Vísitala  Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Gildistími júlí 1987=100 Útreikn- tími júní 1987=100 Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2008
Maí 416,5 424,7 2,0 26,4 46,5 26,4 14,7
Júní 424,7 427,9 0,8 9,4 27,0 28,2 15,4
Júlí 427,9 440,9 3,0 43,2 25,6 33,9 18,5
Ágúst 440,9 441,3 0,1 1,1 16,6 30,7 17,6
September 441,3 447,7 1,5 18,9 19,8 23,4 18,8
Október 447,7 463,8 3,6 52,8 22,5 24,0 23,1
Nóvember 463,8 478,8 3,2 46,5 38,6 27,1 26,8
Desember 478,8 489,6 2,3 30,7 43 30,9 29,6
2009
Janúar 489,6 490,1 0,1 1,2 24,7 23,6 28,6
Febrúar 490,1 492,5 0,5 6 11,9 24,8 27,6
Mars 492,5 490,7 -0,4 -4,3 0,9 20,1 21,7
Apríl 490,7 474,2 -3,4 -33,7 -12,4 4,5 13,9
Maí 474,2 . . . . . .

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.