FRÉTT IÐNAÐUR 20. APRÍL 2016

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan apríl 2016 er 130,8 stig (desember 2009=100) sem er 1,9% hækkun frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í maí 2016.

Verð á innfluttu efni hækkaði um 0,3% frá síðasta mánuði (áhrif á vísitölu 0,1%) en vinnuliðir hækkuðu um 5,7% (1,8%). Þessi hækkun kemur í kjölfar uppfærslu kjarasamninga iðnaðarmanna og verkafólks í byggingariðnaði.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 6,2%.

Breytingar vísitölu byggingarkostnaðar 2015-2016
  Vísitala    Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
  Gildistími janúar 2010=100 Útreikn- tími des. 2009=100 Breytingar í hverjum mánuði, %
  Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2015              
Maí 123,2 123,2 0,0 0,3 0,0 4,0 2,2
Júní 123,2 123,8 0,5 6,2 2,5 4,9 2,6
Júlí 123,8 127,9 3,3 47,8 16,3 7,5 6,0
Ágúst 127,9 128,0 0,1 0,9 16,6 8,0 5,9
September 128,0 127,8 -0,1 -1,5 13,7 7,9 6,1
Október 127,8 127,9 0,1 1,0 0,1 7,9 6,1
Nóvember 127,9 128,1 0,2 1,9 0,9 7,1 6,0
Desember 128,1 128,2 0,1 0,8 1,2 7,2 6,1
2016              
Janúar 128,2 127,9 -0,2 -2,7 -0,1 0,0 3,7
Febrúar 127,9 128,0 0,1 0,7 -0,4 0,0 3,9
Mars 128,0 128,4 0,3 3,5 0,5 0,8 4,3
Apríl 128,4 130,8 1,9 25,8 9,4 4,6 6,2
Maí 130,8 . . . . . .

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang byggingarvisitala@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.