Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan ágúst, er 302,1 stig (júní 1987=100) og hækkar um 0,13% frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyrir september. Samsvarandi vísitala miðuð við eldri grunn (desember 1982=100) er 966 stig.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,7%.