FRÉTT IÐNAÐUR 20. JANÚAR 2015

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan janúar 2015 er 123,3 stig (desember 2009=100) sem er hækkun um 2,1% frá fyrri mánuði.

Verð á innfluttu efni lækkaði um 2,1% (áhrif á vísitölu -0,5%) Vinnuliður vísitölu byggingarkostnaðar hækkaði um 9,9% (2,7%) frá fyrri mánuði. Hækkunina má fyrst og fremst rekja til þess að um áramótin féllu úr gildi lög nr. 10/2009 um tímabundna endurgreiðslu á virðisaukaskatti af vinnu á byggingarstað og þjónustu hönnuða og eftirlitsaðila.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,7%. Vísitalan gildir í febrúar 2015.

Breytingar vísitölu byggingarkostnaðar 2014-2015
  Vísitala    Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
  Gildistími janúar 2010=100 Útreikn- tími des. 2009=100 Breytingar í hverjum mánuði, %
  Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2014              
Febrúar 118,9 118,9 0,0 -0,6 -1,5 0,5 0,1
Mars 118,9 120,0 0,9 11,9 3,3 2,2 1,1
Apríl 120,0 120,0 0,0 -0,2 3,5 1,7 1,2
Maí 120,0 120,6 0,5 6,3 5,9 2,1 2,0
Júní 120,6 120,7 0,1 1,0 2,3 2,8 1,6
Júlí 120,7 120,7 0,0 0,3 2,5 3,0 1,7
Ágúst 120,7 120,8 0,1 1,4 0,9 3,4 1,9
September 120,8 120,5 -0,3 -3,7 -0,7 0,8 1,5
Október 120,5 120,6 0,1 1,2 -0,4 1,0 1,4
Nóvember 120,6 120,8 0,2 2,3 -0,1 0,4 1,3
Desember 120,8 120,9 0,1 0,6 1,4 0,3 1,6
2015              
Janúar 120,9 123,3 2,1 27,6 9,5 4,4 3,7
Febrúar 123,3 . . . . . .

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.