FRÉTT IÐNAÐUR 20. MARS 2015

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan mars 2015 er 123,0 stig (desember 2009=100) sem er lækkun um 0,1% frá fyrri mánuði.

Verð á innfluttu efni lækkaði um 0,9% (áhrif á vísitölu -0,2%) og verð á innlendu efni og öðrum liðum hækkaði samtals um 0,4%  (áhrif á vísitölu 0,1%).

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 2,6%. Vísitalan gildir í apríl 2015.

Breytingar vísitölu byggingarkostnaðar 2014-2015
  Vísitala    Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
  Gildistími janúar 2010=100 Útreikn- tími des. 2009=100 Breytingar í hverjum mánuði, %
  Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2014              
Apríl 120,0 120,0 0,0 -0,2 3,5 1,7 1,2
Maí 120,0 120,6 0,5 6,3 5,9 2,1 2,0
Júní 120,6 120,7 0,1 1,0 2,3 2,8 1,6
Júlí 120,7 120,7 0,0 0,3 2,5 3,0 1,7
Ágúst 120,7 120,8 0,1 1,4 0,9 3,4 1,9
September 120,8 120,5 -0,3 -3,7 -0,7 0,8 1,5
Október 120,5 120,6 0,1 1,2 -0,4 1,0 1,4
Nóvember 120,6 120,8 0,2 2,3 -0,1 0,4 1,3
Desember 120,8 120,9 0,1 0,6 1,4 0,3 1,6
2015              
Janúar 120,9 123,3 2,1 27,6 9,5 4,4 3,7
Febrúar 123,3 123,2 -0,1 -1,7 8,1 3,9 3,6
Mars 123,2 123,0 -0,1 -1,3 7,4 4,3 2,6
April 123,0 . . . . . .

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.