TALNAEFNI KOSNINGAR 16. JÚNÍ 2025

Kosið var til Alþingis 30. nóvember 2024. Við kosningarnar voru alls 268.490 á kjörskrá eða 68,9% landsmanna. Af þeim greiddu 215.395 atkvæði eða 80,2% kjósenda. Kosningaþátttaka kvenna var 81,2%, karla 79,2% og kynsegin/annarra 69,9%.

Kosningaþátttakan var breytileg eftir aldri og var hún almennt minni á meðal yngri en eldri kjósenda. Kosningaþátttakan var 83,4% meðal einstaklinga sem engan erlendan bakgrunn hafa á meðan hún var 41,2% meðal innflytjenda.

Við kosningarnar greiddu 44.965 manns atkvæði utan kjörfundar eða 20,9% kjósenda en sambærilegt hlutfall var 23,4% í kosningunum 2021.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.