FRÉTT KOSNINGAR 03. APRÍL 2009

Sveitarstjórnir semja kjörskrár eftir kjörskrárstofnum sem Þjóðskrá lætur þeim í té. Á kjörskrárstofnum vegna alþingiskosninganna 25. apríl 2009 eru 227.896 kjósendur, konur eru 114.295 en karlar 113.601. Konur eru því 694 eða 0,6% fleiri en karlar. Við alþingiskosningarnar 12. maí 2007 voru 221.330 kjósendur á kjörskrá og nemur fjölgunin 6.566 eða 3,0%.

Í endanlegri tölu kjósenda á kjörskrá, sem birt verður í skýrslu Hagstofunnar um kosningarnar, verður tekið tillit til tölu látinna og þeirra sem fá nýtt ríkisfang eftir að kjörskrárstofnar voru unnir, svo og breytinga sem verða á kjörskrá vegna leiðréttinga.

Kjósendur með lögheimili erlendis eru 9.924 eða 4,4% kjósendatölunnar og hefur þeim fjölgað um 1.131 frá síðustu alþingiskosningum eða um 12,9%. Kjósendum með lögheimili hér á landi fjölgar um 5.325 eða 2,6%. Þeir sem vegna aldurs fá nú að kjósa í fyrsta sinn til Alþingis eru 9.398 eða 4,1% af kjósendatölunni.

Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 á kosningarrétt hver íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning fer fram og á lögheimili hér á landi. Íslenskur ríkisborgari, sem náð hefur 18 ára aldri og átt hefur lögheimili hér á landi, á og kosningarrétt í átta ár frá því hann flutti lögheimili af landinu, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Slíkur ríkisborgari á og kosningarrétt hér á landi eftir þann tíma, enda sé um það sótt (með ákvæði til bráðabirgða var kosningalögunum breytt þannig að viðmiðunardagur 1. desember var færður til 25. mars við kosningarnar í vor). Ákvörðun um að einhver sé þannig á kjörskrá tekinn gildir í fjögur ár eftir að umsókn var lögð fram. Nú eru á kjörskrárstofnum 772 kjósendur sem svo stendur á um en voru 227 við kosningarnar 2007. Þessi fjölgun nú helgast af framan greindri lagabreytingu.

Samkvæmt annarri breytingu til bráðabirgða á lögunum var  hver maður nú tekinn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem hann átti lögheimili samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár fjórum vikum fyrir kjördag, 28. mars.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.