FRÉTT KOSNINGAR 21. JÚNÍ 2004

Sveitarstjórnir semja kjörskrár eftir kjörskrárstofnum sem Hagstofan lætur þeim í té. Á stofnum þeim sem hún hefur unnið vegna forsetakjörsins 26. júní 2004, eru 213.553 kjósendur, 107.119 konur og 106.434 karlar. Í endanlegri tölu kjósenda á kjörskrá, sem birt verður í skýrslu um kosningarnar, verður tekið tillit til tölu látinna og þeirra sem fá nýtt ríkisfang eftir að kjörskrárstofnar voru unnir, svo og breytinga sem verða á kjörskrá vegna leiðréttinga. Við forsetakjör 29. júní 1996 voru 194.705 kjósendur á kjörskrá og nemur fjölgunin 18.848 eða 9,7%.
     Kjósendur með lögheimili erlendis eru 8.860 eða 4,1% kjósenda og hefur þeim fjölgað um 1.094 frá síðasta forsetakjöri eða um 14,1%. Kjósendum með lögheimili hér á landi hefur fjölgað um 17.754 eða 9,5%. Þeir sem vegna aldurs fá nú að kjósa í fyrsta sinn við forsetakjör eru 34.549 eða 16,2% kjósenda.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.