Hagstofa Íslands hefur gefið út Hagtíðindi þar sem greint er frá niðurstöðum kosninga til sveitarstjórna sem fram fóru 31. maí 2014 og náðu til 74 sveitarfélaga.
Í 56 sveitarfélögum með 99% kjósenda og 184 framboðslistum var bundin hlutfallskosning, þar af var sjálfkjörið í þremur sveitarfélögum þar sem aðeins einn listi var borinn fram. Kosning var óbundin í 18 sveitarfélögum þar sem rúmt 1% kjósenda var á kjörskrá.
Kosningaþátttaka í þessum kosningum var sú dræmasta í sveitarstjórnarkosningum til þessa eða 66,5%. Kosningaþátttaka kvenna var meiri en karla og var breytileg eftir aldri, meiri meðal eldri en yngri kjósenda. Þátttaka kjósenda með erlent ríkisfang var 21%, tæp 57% meðal norrænna kjósenda en 17% meðal annarra erlendra ríkisborgara en alls höfðu 10.183 kjósendur með erlent ríkisfang og búsettir hér á landi kosningarrétt við sveitarstjórnarkosningarnar.
Gild atkvæði voru alls 152.234. Auðir seðlar voru 5.594 og aðrir ógildir 788 eða samanlagt 4,0% greiddra atkvæða.
Tala frambjóðenda í sveitarfélögum þar sem kosning var bundin var 2.916, 1.532 karlar (52,5%) og 1.384 konur (47,5%). Voru kjörnir 410 fulltrúar í þessum sveitarfélögum en 94 Í sveitarfélögum þar sem kosning var óbundin. Alls voru því kjörnir 504 sveitarstjórnarmenn á landinu öllu, 282 karlar eða 56,0% og 222 konur eða 44,0%. Hlutfall kvenna af kjörnum fulltrúum hefur aldrei verið hærra. Í kosningunum var 58% kjörinna fulltrúa nýkjörnir en 42% fulltrúa höfðu einnig verið kjörnir í kosningunum 2010.
Sveitarstjórnarkosningar 31. maí 2014 - Hagtíðindi