Kjötframleiðsla í apríl 2024 var samtals 1.889 tonn, 25% meiri en í apríl á síðasta ári. Framleiðsla svínakjöts var 37% meiri en í apríl í fyrra, nautakjötsframleiðslan 23% meiri og alifuglaframleiðslan var 17% meiri. Útungun alifugla jókst um 15% borið saman við apríl 2023.