Kjötframleiðsla í febrúar 2024 var samtals 1.731 tonn, 10% meiri en í febrúar á síðasta ári. Framleiðsla svínakjöts var 8% meiri en í febrúar í fyrra, nautakjötsframleiðslan jókst um 10% og alifuglaframleiðslan var 13% meiri. Útungun alifugla til kjötframleiðslu dróst hins vegar saman um 11% samanborið við febrúar fyrir ári.