Kjötframleiðsla í júlí 2024 var samtals 1.966 tonn, 15% meiri en í júlí á síðasta ári. Þar af var framleiðsla alifuglakjöts 19% meiri en fyrir ári, svínakjötsframleiðsla var 18% meiri og nautakjötsframleiðslan jókst um 4%. Þá var útungun alifugla til kjötframleiðslu 20% meiri í júlí miðað við sama mánuð í fyrra.