Kjötframleiðsla í maí 2024 var samtals 1.838 tonn, jafn mikil og í maí á síðasta ári. Framleiðsla nautakjöts var 5% minni en í maí í fyrra, svínakjötsframleiðslan var 5% meiri en alifuglaframleiðslan stóð í stað. Útungun alifugla til kjötframleiðslu var 14% meiri en í maí 2023.