FRÉTT LANDBÚNAÐUR 05. JÚNÍ 2026

Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins árið 2025 er áætlað 100 milljarðar sem er 7% aukning frá árinu 2024. Áætlað er að 64% framleiðsluvirðisins teljist til búfjárræktar en 27% til nytjaplönturæktar.

Virði nytjaplönturæktar jókst um 14% frá árinu 2024, sem má að mestu rekja til aukinnar uppskeru þar sem veðurfar sumar og haust 2025 var mun betra en árið áður.

Gert er ráð fyrir að kostnaður við aðfanganotkun verði 68 milljarðar króna árið 2025 sem er 10% aukning frá fyrra ári. Aðfanganotkun er stærsti útgjaldaliðurinn, 67% af heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins, sem er svipað og það var á fyrra ári. Rétt er að benda á að mat á aðfanganotkun er háð nokkurri óvissu og þar með verður mat á hlutdeild annarra útgjaldaliða einnig óvisst.

Áætlunin byggir á lokaúttekt fyrir árið 2024 og svo fyrirliggjandi upplýsingum um magn- og verðbreytingar á landbúnaðarvörum árið 2025.

Framleiðsluvirði 94 milljarðar árið 2024
Árið 2024 var heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins metið 94 milljarðar króna. Virði afurða búfjárræktar, þ.e. framleiðsla dýra og dýraafurða, vegur þar langþyngst eða um 66% en virði afurða nytjaplönturæktar vegur um 26%. Tekjur af landbúnaðarþjónustu eru innan við 1% af heildar-framleiðsluvirðinu og tekjur af óaðskiljanlegri aukastarfsemi eru 8%.

Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins jókst um 5% frá fyrra ári.

Heildaraðfanganotkun árið 2024 nam 61 milljarði króna sem er 4% aukning frá fyrra ári. Aðfanganotkun er stærsti útgjaldaliðurinn og vegur 66% af framleiðsluvirðinu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.