Áætlað heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins fyrir árið 2014¹ var 64,2 milljarðar á grunnverði þ.e. að meðtöldum vörustyrkjum en frátöldum vörusköttum2 og jókst um 4,3% á árinu. Virði afurða búfjárræktar er talið vera 41,7 milljarðar króna og þar af vörutengdir styrkir og skattar um 9,9 milljarðar króna. Virði afurða nytjaplönturæktar eru tæpir 19,5 milljarðar og þ.a. vörutengdir styrkir og skattar 291 milljónir króna. Aðfanganotkun landbúnaðarins í heild er áætluð 48,5 milljarðar árið 2014 og jókst um 4,2% frá fyrra ári.
Aukningu í framleiðsluvirði árið 2014 má rekja meira til magnbreytinga en verðbreytinga. En breytingu á notkun aðfanga má rekja til 6,5% magnaukningar og 2,2% hækkunar á verði.
Framleiðsluverðmæti landbúnaðarins árið 2013 er metið 61,6 milljarða á grunnverði miðað við uppfærðar tölur og er það heildaraukning um 4,3% frá fyrra árinu, 2012. Þessa aukningu má rekja til 1,3% magnaukningar og 3% hækkunar á verði.
Verðmæti afurða búfjárræktar jókst um 3,0% árið 2013 og var metið á tæplega 40,3 milljarða króna. Verðmætustu afurðirnar eru mjólk og kindakjöt, þar sem framleiðsluverðmæti jókst annars vegar um 1,8% og hins vegar 3,8%. Framleiðsluverðmæti svínakjöts hækkaði um 34,1% milli ára og alifugla um 12,1%. Framleiðsluverðmæti nytjaplantna, að heimanotuðu fóðri meðtöldu, reyndist 18,4 milljarðar eða 8,8% hærra en fyrra ár, 2012. Verðmæti afurða kornræktar minnkaði um 24,4% frá árinu á undan og kartaflna um 5,1%. Framleiðsluverðmæti fóðurjurta jókst um 13,3% og garðyrkjuafurða um 5,7%.
Aðfanganotkun landbúnaðarins jókst um 10,3% á árinu 2013, í 46,5 milljarða milli ára og munar þar helst um 10,7% verðbreytingu en magnbreytingin einungis -0,4%. Í samræmi við umfang búfjárræktarinnar í íslenskum landbúnaði er fóðurnotkun veigamesti liður í aðföngunum með upp undir helmings hlut. Líkt og í framleiðsluverðmæti nytjaplantna er hér verðmæti heimaræktaðs fóðurs meðtalið.
Hagstofa Íslands gefur hagreikninga landbúnaðarins út núna í þriðja sinn. Í einhverjum tilfellum hafa niðurstöður fyrri ára breyst en það er vegna endurbóta á aðferðafræði og aðgengis að nýjum upplýsingum.
Afkoma landbúnaðarins 2012-2014 | ||||
Hlutfallsleg | ||||
breyting frá | ||||
Á verðlagi hvers árs, millj.kr. | 2012 | 2013 | 2014 3 | fyrra ári |
Virði afurða nytjaplönturæktar | 16.910 | 18.390 | 19.490 | 6,0 |
þ.a. Vörutengdir styrkir og skattar af nytjaplönturækt | 350 | 390 | 291 | -25,3 |
Virði afurða búfjárræktar | 39.107 | 40.285 | 41.727 | 3,6 |
þ.a. Vörutengdir styrkir og skattar af búfjárrækt | 9.273 | 9.471 | 9.929 | 4,8 |
Tekjur af landbúnaðarþjónustu | 370 | 379 | 384 | 1,4 |
Tekjur af óaðskiljanlegri aukastarfsemi | 2.623 | 2.515 | 2.585 | 2,8 |
Heildarframleiðsluvirði | 59.010 | 61.568 | 64.185 | 4,3 |
Kostnaður við aðfanganotkun | 42.187 | 46.524 | 48.480 | 4,2 |
Vergt vinnsluvirði | 16.823 | 15.044 | 15.705 | 4,4 |
Afskriftir fastafjármuna | 3.511 | 4.536 | 4.526 | -0,2 |
Hreint vinnsluvirði | 13.312 | 10.507 | 11.179 | 6,4 |
Aðrir framleiðslustyrkir | 167 | 156 | 161 | 3,8 |
Aðrir framleiðsluskattar | … | … | … | … |
Þáttatekjur | 13.479 | 10.663 | 11.341 | 6,4 |
Launakostnaður | 4.389 | 4.765 | 5.286 | 10,9 |
Rekstrarhagnaður/einyrkjatekjur | 9.089 | 5.898 | 6.055 | 2,7 |
Leiga og önnur leigugjöld af fasteignum sem ber að greiða (jarðaleiga) | 129 | 143 | … | … |
Fjármagnsgjöld | 4.168 | 4.073 | … | … |
Fjáreignatekjur | 172 | 98 | … | … |
¹Áætlun ársins 2014 byggist á lokaniðurstöðum ársins 2013 og þeim upplýsingum sem fyrirliggjandi eru um magn-og verðbreytingar árið 2014.
2Vörutengdir styrkir eru s.s. beingreiðslur en vörutengdir skattar eru s.s. búnaðargjald og verðmiðlunargjöld.
3Áætlað