Áætlað heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins fyrir árið 2017¹ var 62,5 milljarður á grunnverði þ.e. að meðtöldum vörustyrkjum en frátöldum vörusköttum2 og lækkaði um 1,0% á árinu. Lækkun framleiðsluvirðis má rekja til 0,5% minna framleiðslumagns og 1,5% verðlækkunar samanborið við árið áður.
Virði afurða búfjárræktar er talið vera 42,2 milljarðar króna og þar af vörutengdir styrkir og skattar um 10,9 milljarðar króna. Virði afurða nytjaplönturæktar eru rúmir 15,7 milljarðar og þ.a. vörutengdir styrkir og skattar 502 milljónir króna3. Aðfanganotkun landbúnaðarins í heild er áætluð 38,6 milljarðar árið 2017 og dróst saman um 5,0% frá fyrra ári. Breytingu á notkun aðfanga má rekja til 0,8% magnlækkunar og 4,3% lækkunar á verði.
Afkoma landbúnaðarins 2015-2017 | ||||
Á verðlagi hvers árs, millj.kr. | 2015 | 2016 | 2017* |
Breyting milli áranna 2016/2017,* % |
Virði afurða nytjaplönturæktar | 17.023 | 16.121 | 15.740 | -2,4 |
Þ.a. vörutengdir styrkir og skattar af nytjaplönturækt | 295 | 118 | 502 | 325,4 |
Virði afurða búfjárræktar | 43.807 | 42.538 | 42.172 | -0,9 |
Þ.a. vörutengdir styrkir og skattarf af búfjárrækt | 10.336 | 10.574 | 10.872 | 2,8 |
Tekjur af landbúnaðarþjónustu | 316 | 334 | 345 | 3,3 |
Tekjur af óaðskiljanlegri aukastarfsemi | 3.425 | 4.084 | 4.204 | 2,9 |
Heildarframleiðsluvirði | 64.571 | 63.077 | 62.462 | -1,0 |
Kostnaður við aðfanganotkun | 41.425 | 40.674 | 38.624 | -5,0 |
Vergt vinnsluvirði | 23.146 | 22.403 | 23.838 | 6,4 |
Afskriftir fastafjármuna | 5.468 | 5.554 | 5.592 | 0,7 |
Hreint vinnsluvirði | 17.678 | 16.849 | 18.246 | 8,3 |
Aðrir framleiðslustyrkir | 195 | 186 | 205 | 10,2 |
Aðrir framleiðsluskattar | ... | ... | 0 | ... |
Þáttatekjur | 17.873 | 17.035 | 18.451 | 8,3 |
Launakostnaður | 4.855 | 6.186 | 6.261 | 1,2 |
Rekstrarhagnaður/einyrkjatekjur | 13.018 | 10.849 | 12.189 | 12,4 |
Leiga og önnur leigugjöld af fasteignum sem ber að greiða (jarðaleiga) | 154 | 235 | 235 | ... |
Fjármagnsgjöld | 2.715 | 4.469 | 4.469 | ... |
Fjáreignatekjur | 76 | 184 | 184 | ... |
*Áætlað |
¹Áætlun ársins 2017 byggist á lokaniðurstöðum ársins 2016 og þeim upplýsingum sem fyrirliggjandi eru um magn-og verðbreytingar árið 2017.
2Vörutengdir styrkir eru s.s. beingreiðslur.
3Hækkunin í vörutengdum styrkjum og sköttum af nytjaplönturækt skýrist vegna þess að búnaðargjald er ekki lagt á frá og með tekjuári 2017.