Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins fyrir árið 2018 var 60,9 milljarðar á grunnverði, þ.e. að meðtöldum vörustyrkjum en að frátöldum vörusköttum1 og lækkaði það um 3,0% á árinu. Lækkunina má rekja til 3,8% minna framleiðslumagns og 0,8% verðhækkunar samanborið við árið áður.
Virði afurða búfjárræktar er áætlað 42,2 milljarðar króna, þar af voru vörutengdir styrkir og skattar um 11,5 milljarðar króna2. Virði afurða nytjaplönturæktar er 14,4 milljarðar, þar af voru vörutengdir styrkir og skattar 519 milljónir króna. Aðfanganotkun landbúnaðarins í heild er áætluð 40,8 milljarðar árið 2018 og jókst hún um 1,2% frá fyrra ári. Rekja má breytingu á notkun aðfanga til 4,3% magnlækkunar og 5,1% hækkunar á verði.
Afkoma landbúnaðarins 2016-2018 | ||||
Á verðlagi hvers árs, millj.kr. | 2016 | 2017 | 2018 | % milli áranna 2017/2018 |
Virði afurða nytjaplönturæktar | 16.121 | 16.691 | 14.399 | -13,7 |
Þ.a. vörutengdir styrkir og skattar af nytjaplönturækt | 118 | 604 | 519 | -14,1 |
Virði afurða búfjárræktar | 42.538 | 42.039 | 42.188 | 0,4 |
Þ.a. vörutengdir styrkir og skattar af búfjárrækt | 10.574 | 11.598 | 11.543 | -0,5 |
Tekjur af landbúnaðarþjónustu | 334 | 293 | 309 | 5,5 |
Tekjur af óaðskiljanlegri aukastarfsemi | 4.084 | 3.749 | 3.963 | 5,7 |
Heildarframleiðsluvirði | 63.077 | 62.772 | 60.859 | -3,0 |
Kostnaður við aðfanganotkun | 40.674 | 40.342 | 40.840 | 1,2 |
Vergt vinnsluvirði | 22.403 | 22.430 | 20.019 | -10,7 |
Afskriftir fastafjármuna | 5.554 | 6.275 | 6.642 | 5,8 |
Hreint vinnsluvirði | 16.849 | 16.154 | 13.377 | -17,2 |
Aðrir framleiðslustyrkir | 186 | 205 | 203 | -1,0 |
Aðrir framleiðsluskattar | 0 | 0 | 0 | 0 |
Þáttatekjur | 17.035 | 16.359 | 13.580 | -17,0 |
Launakostnaður | 6.186 | 6.511 | 6.406 | -1,6 |
Rekstrarhagnaður/einyrkjatekjur | 10.849 | 9.848 | 7.174 | -27,2 |
Leiga og önnur leigugjöld af fasteignum sem ber að greiða (jarðaleiga) | 235 | 169 | 169 | 0,0 |
Fjármagnsgjöld | 4.469 | 4.303 | 4.738 | 10,1 |
Fjáreignatekjur | 184 | 198 | 188 | -5,1 |
Tekjur af atvinnurekstri | 6.329 | 5.574 | 2.455 | -56,0 |
1Vörutengdir styrkir eru s.s. beingreiðslur en vörutengdir skattar eru s.s. búnaðargjald og verðmiðlunargjöld.
2Hækkunin í vörutengdum styrkjum og sköttum af nytjaplönturækt skýrist vegna þess að búnaðargjald er ekki lagt á frá og með tekjuári 2017.