Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins árið 2019 var áætlað 65 milljarðar króna á grunnverði, þ.e. að meðtöldum vörustyrkjum en frátöldum vörusköttum,1 og hækkaði um 6,8% á árinu. Hækkun framleiðsluvirðis má rekja til 4,2% verðhækkunar og 2,5% aukningar framleiðslumagns í samanburði við árið áður.
Virði afurða búfjárræktar var áætlað 43,1 milljarður króna og þar af vörutengdir styrkir og skattar um 12,1 milljarður króna. Virði afurða nytjaplönturæktar voru 17,5 milljarðar og þ.a. vörutengdir styrkir og skattar 667 milljónir króna. Aðfanganotkun landbúnaðarins í heild var áætluð 42,5 milljarðar árið 2019 og hækkaði um 4,2% frá fyrra ári. Rekja má breytingu á notkun aðfanga til 6,2% hækkunar á verði og 1,9% magnlækkunar.
Afkoma landbúnaðarins 2017-2019 | ||||
Á verðlagi hvers árs, millj. kr. | 2017 | 2018 | 2019* | % milli áranna 2018/2019 |
Virði afurða nytjaplönturæktar | 16.691 | 14.399 | 17.498 | 21,5 |
Þ.a. vörutengdir styrkir og skattar af nytjaplönturækt | 604 | 519 | 667 | 28,5 |
Virði afurða búfjárræktar | 42.039 | 42.188 | 43.136 | 2,2 |
Þ.a. vörutengdir styrkir og skattar af búfjárrækt | 11.598 | 11.543 | 12.110 | 4,9 |
Tekjur af landbúnaðarþjónustu | 293 | 309 | 327 | 5,8 |
Tekjur af óaðskiljanlegri aukastarfsemi | 3.749 | 3.963 | 4.038 | 1,9 |
Heildarframleiðsluvirði | 62.772 | 60.859 | 65.000 | 6,8 |
Kostnaður við aðfanganotkun | 40.342 | 40.840 | 42.548 | 4,2 |
Vergt vinnsluvirði | 22.430 | 20.019 | 22.452 | 12,2 |
Afskriftir fastafjármuna | 6.275 | 6.642 | 6.642 | 0,0 |
Hreint vinnsluvirði | 16.154 | 13.377 | 15.810 | 18,2 |
Aðrir framleiðslustyrkir | 205 | 203 | 208 | 2,5 |
Aðrir framleiðsluskattar | 0 | 0 | 0 | 0 |
Þáttatekjur | 16.359 | 13.580 | 16.018 | 18,0 |
Launakostnaður | 6.511 | 6.406 | 6.792 | 6,0 |
Rekstrarhagnaður/einyrkjatekjur | 9.848 | 7.174 | 9.226 | 28,6 |
Leiga og önnur leigugjöld af fasteignum sem ber að greiða (jarðaleiga) | 169 | 169 | 169 | 0,0 |
Fjármagnsgjöld | 4.303 | 4.738 | 4.738 | 0,0 |
Fjáreignatekjur | 198 | 188 | 188 | 0,0 |
Tekjur af atvinnurekstri | 5.574 | 2.455 | 4.507 | 83,6 |
*Áætlað |
1 Vörutengdir styrkir eru til að mynda beingreiðslur.