FRÉTT LANDBÚNAÐUR 16. MARS 2016

Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 16. mars 2016 13:00 frá upprunalegri útgáfu

Áætlað heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins fyrir árið 2015[1] var 67,7 milljarðar á grunnverði þ.e. að meðtöldum vörustyrkjum en frátöldum vörusköttum,[2] og jókst um 2,2% á árinu. Virði afurða búfjárræktar er talið vera 43,3 milljarðar króna og þar af vörutengdir styrkir og skattar um 10,4 milljarðar króna. Virði afurða nytjaplönturæktar eru tæpir 20,8 milljarðar og þ.a. vörutengdir styrkir og skattar 290 milljónir króna. Aðfanganotkun landbúnaðarins í heild er áætluð 50,6 milljarðar árið 2015 og jókst um 2,4% frá fyrra ári.

Aukningu í framleiðsluvirði árið 2015 má rekja að mestu til  magnbreytinga. En breytingu á notkun aðfanga má rekja til 2,5% magnaukningar og 0,2% lækkunar á verði.

Framleiðsluverðmæti landbúnaðarins árið 2014 er metið 66,2 milljarða á grunnverði miðað við uppfærðar tölur og er það heildaraukning um 7,5% frá fyrra árinu, 2013. Þessa aukningu má rekja til 6,7% magnaukningar og 0,8% hækkunar á verði.

Verðmæti afurða búfjárræktar jókst um 4,2% árið 2014 og var metið á tæplega 42 milljarða króna. Verðmætustu afurðirnar eru mjólk og kindakjöt, þar sem framleiðsluverðmæti jókst annars vegar um 9,1% og hins vegar 0,2%. Framleiðsluverðmæti svínakjöts lækkaði um 4,5% milli ára og alifugla um 1,2%. Framleiðsluverðmæti nytjaplantna, að heimanotuðu fóðri meðtöldu, reyndist 20,8 milljarðar eða 12,8% hærra en fyrra ár, 2013. Verðmæti afurða kornræktar jókst um 15,4% frá árinu á undan og kartaflna um 65,8%. Framleiðsluverðmæti fóðurjurta jókst um 12,5% og garðyrkjuafurða um 0,8%.

Aðfanganotkun landbúnaðarins jókst um 6,4% á árinu 2014, í 49,5 milljarða milli ára og munar þar helst um 10,1% magnbreytingu og 6,4% verðbreytingu. Í samræmi við umfang búfjárræktarinnar í íslenskum landbúnaði er fóðurnotkun veigamesti liður í aðföngunum með upp undir helmings hlut. Líkt og í framleiðsluverðmæti nytjaplantna er hér verðmæti heimaræktaðs fóðurs meðtalið.

Afkoma landbúnaðarins 2013–2015        
        Hlutfallsleg 
        breyting frá 
Á verðlagi hvers árs, millj. kr. 2013 2014 20151 fyrra ári
         
Virði afurða nytjaplönturæktar  18.390 20.753 20.814 0,3
þ.a. vörutengdir styrkir og skattar af nytjaplönturækt 390 269 290 7,6
Virði afurða búfjárræktar 40.285 41.960 43.340 3,3
þ.a. vörutengdir styrkir og skattar af búfjárrækt 9.471 10.098 10.411 3,1
Tekjur af landbúnaðarþjónustu 379 287 292 1,8
Tekjur af óaðskiljanlegri aukastarfsemi   2.515 3.190 3.221 1,0
Heildarframleiðsluvirði 61.568 66.189 67.667 2,2
Kostnaður við aðfanganotkun 46.524 49.507 50.674 2,4
Vergt vinnsluvirði 15.044 16.682 16.994 1,9
Afskriftir fastafjármuna 4.536 5.251 4.526 -13,8
Hreint vinnsluvirði 10.507 11.431 12.468 9,1
Aðrir framleiðslustyrkir 156 181 185 2,4
Aðrir framleiðsluskattar ... ... ... ...
Þáttatekjur 10.663 11.612 12.653 9,0
Launakostnaður 4765 5.022 5.621 11,9
Rekstrarhagnaður/einyrkjatekjur 5.898 6.590 7.032 6,7
Leiga og önnur leigugjöld af fasteignum sem ber að greiða (jarðaleiga)  143 159 ... ...
Fjármagnsgjöld 4.073 3.502 ... ...
Fjáreignatekjur  98 98 ... ...
1 Áætlað.        

[1] Áætlun ársins 2015 byggist á lokaniðurstöðum ársins 2014 og þeim upplýsingum sem fyrirliggjandi eru um magn- og verðbreytingar árið 2015.

[2] Vörutengdir styrkir eru s.s. beingreiðslur en vörutengdir skattar eru s.s. búnaðargjald og verðmiðlunargjöld.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.