Alls voru framleidd 29.870 tonn af kjöti árið 2015 sem er 1,9% meira en árið 2014. Tæp 10.200 tonn voru framleidd af lamba- og kindakjöti, rúm 8.300 tonn af alifuglakjöti, 6.800 tonn af svínakjöti, 3.600 tonn af nautgripakjöti og tæp 950 tonn af hrossakjöti.
Útflutningur á kjöti dróst saman 19,5% á meðan innflutningur jókst um 1,8%. Alls voru flutt út 3.852 tonn af kjöti árið 2015 samanborið við 4.783 tonn árið 2014. Útflutningur á lamba- og kindakjöti nam 2.947 tonnum og dróst saman um 14,3% á milli ára. Útflutningur á hrossakjöti dróst saman um 33% og á svínakjöti um 32%. Alls voru flutt inn 2.563 tonn af kjöti árið 2015 samanborið við 2.517 tonn árið 2014. Innflutningur á nautgripakjöti nam 1.045 tonnum, svínakjöti 598 tonnum og alifuglakjöti 920 tonnum.
Kjötneysla á íbúa var samtals 83,8 kg árið 2015. Neysla á alifuglakjöti nam 27,6 kg á íbúa og jókst um 2% frá fyrra ári. Neysla á svínakjöti nam 21 kg á íbúa og jókst um 10% á milli ári. Neysla á nautgripakjöti var 14,1 kg á mann sem 1,9% aukning miðað við 2014. Neysla á lamba- og kindakjöti dróst saman um 3% á milli ára og nam 19,5 kg á íbúa ári 2015. Neysla á hrossakjöti nam 1,6kg á íbúa árið 2015 sem 5% minna en árið 2014.
Kindakjöt | Nautakjöt | Hrossakjöt | Svínakjöt | Alifuglakjöt | ||
Kjötneysla á íbúa | 2014 | 20,1 | 13,8 | 1,7 | 19,1 | 27,0 |
2015 | 19,5 | 14,1 | 1,6 | 21,0 | 27,6 | |
Framleiðsla, tonn | 2014 | 10.100 | 3.495 | 1.200 | 6.472 | 8.046 |
2015 | 10.185 | 3.605 | 946 | 6.806 | 8.328 | |
Innflutningur, tonn | 2014 | - | 1.037 | - | 555 | 925 |
2015 | - | 1.045 | - | 598 | 920 | |
Útflutningur, tonn | 2014 | 3.440 | 0 | 631 | 712 | - |
2015 | 2.947 | 21 | 422 | 483 | - |