FRÉTT LAUN OG TEKJUR 08. MARS 2013

Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 2. september 2013 9:00 frá upprunalegri útgáfu. 

Regluleg laun voru að meðaltali 0,8% hærri á fjórða ársfjórðungi 2012 en í ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 4,8% að meðaltali, hækkunin var 5,1% á almennum vinnumarkaði og 4,1% hjá opinberum starfsmönnum.

Laun hækkuðu mest í fjármálaþjónustu
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum eða um 1,3%. Á sama tímabili hækkuðu laun um 0,8% í byggingarstarfsemi. Frá fyrra ári hækkuðu laun einnig mest í fjármálaþjónustu (9,0%) og minnst í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (4,1%).

Þá hækkuðu laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks mest frá fyrri ársfjórðungi eða um 1,6% en laun stjórnenda hækkuðu að meðaltali um 0,5% á sama tímabili. Laun sérfræðinga hækkuðu mest frá fyrra ári eða um 7,3% en laun verkafólks hækkuðu minnst, um 3,1%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.