Launavísitala í febrúar 2013 er 449,4 stig og hækkaði um 2,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,2%.
Launavísitala 2012-2013 | |||||
Desember 1988=100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | ||||
Vísitala launa- mánaðar | Breyting frá fyrri mánuði, % | ||||
Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
2012 | |||||
Janúar | 418,2 | 0,0 | 2,4 | 4,5 | 9,1 |
Febrúar | 427,1 | 2,1 | 10,2 | 8,7 | 11,3 |
Mars | 431,7 | 1,1 | 13,6 | 9,4 | 12,1 |
Apríl | 431,4 | -0,1 | 13,2 | 7,7 | 11,9 |
Maí | 432,9 | 0,4 | 5,5 | 7,8 | 11,0 |
Júní | 433,1 | 0,0 | 1,3 | 7,3 | 6,9 |
Júlí | 433,5 | 0,1 | 2,0 | 7,5 | 6,0 |
Ágúst | 433,7 | 0,1 | 0,7 | 3,1 | 5,9 |
September | 436,3 | 0,6 | 3,0 | 2,1 | 5,7 |
Október | 436,8 | 0,1 | 3,1 | 2,5 | 5,1 |
Nóvember | 437,7 | 0,2 | 3,7 | 2,2 | 5,0 |
Desember | 437,7 | 0,0 | 1,3 | 2,1 | 4,7 |
2013 | |||||
Janúar | 439,2 | 0,3 | 2,2 | 2,6 | 5,0 |
Febrúar | 449,4 | 2,3 | 11,1 | 7,4 | 5,2 |
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð. |
Kaupmáttur launa hefur hækkað um 0,7% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í febrúar er 112,5 stig og hækkaði um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 0,4%.
Kjarasamningar á tímabilinu
Í launavísitölu febrúarmánaðar gætir áhrifa hækkana sem kveðið var á um í kjarasamningum milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem undirritaðir voru 5. maí 2011. Í þeim var kveðið á um almenna hækkun launataxta um 3,25% hinn 1. febrúar 2013.