Launavísitala í júní 2018 er 660,9 stig og hækkaði um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,9%.
Launavísitala 2017-2018 | |||||
Desember 1988=100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | ||||
Vísitala | Breyting frá fyrri mánuði, % | ||||
síðustu 3 mánuði, % | síðustu 6 mánuði, % | síðustu 12 mánuði, % | |||
2017 | |||||
Júní | 623,8 | 1,0 | 19,0 | 11,0 | 7,3 |
Júlí | 623,9 | 0,0 | 18,2 | 10,9 | 7,2 |
Ágúst | 625,2 | 0,2 | 4,9 | 10,4 | 7,2 |
September | 630,0 | 0,8 | 4,0 | 11,2 | 7,4 |
Október | 630,7 | 0,1 | 4,4 | 11,1 | 7,2 |
Nóvember | 631,6 | 0,1 | 4,2 | 4,5 | 7,1 |
Desember | 632,8 | 0,2 | 1,8 | 2,9 | 6,9 |
2018 | |||||
Janúar | 635,6 | 0,4 | 3,1 | 3,8 | 7,3 |
Febrúar | 638,1 | 0,4 | 4,2 | 4,2 | 7,2 |
Mars | 640,0 | 0,3 | 4,6 | 3,2 | 7,1 |
Apríl | 641,9 | 0,3 | 4,0 | 3,6 | 7,3 |
Maí | 656,5 | 2,3 | 12,0 | 8,0 | 6,3 |
Júní | 660,9 | 0,7 | 13,7 | 9,1 | 5,9 |
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð. |
Kaupmáttur launa hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði
Kaupmáttur launa í júní 2018 er 149,1 stig og hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,3%.
Kjarasamningar
Í vísitölu júnímánaðar gætir áhrifa kjarasamninga hjá opinbera geiranum þar sem meðal annars var kveðið á um almennar launahækkanir á bilinu 2,0% til 3,4% þann 1. júní 2018.
Um launa- og kaupmáttarvísitölu
Launavísitala er verðvísitala sem byggist á gögnum úr launarannsókn Hagstofu Íslands og sýnir breytingar á verði vinnustundar fyrir fasta samsetningu vinnutíma. Vísitalan tekur mið af breytingum reglulegra launa sem greidd eru fyrir umsaminn vinnutíma hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Tekið er tillit til hvers konar álags-, bónus- og kostnaðargreiðslna sem gerðar eru upp á hverju útborgunartímabili. Hvorki er tekið tillit til tilfallandi yfirvinnu né óreglulegra greiðslna enda er í lögum um launavísitölu ætlast til að breytingar á vinnutíma og samsetningu hans hafi ekki áhrif á vísitöluna.
Vísitala kaupmáttar launa byggir á launavísitölu og vísitölu neysluverðs. Almennt eykst kaupmáttur launa þegar laun hækka umfram verðlag en minnkar þegar verðbólga er meiri en launahækkanir. Hafa þarf í huga að kaupmáttur launa er annar en kaupmáttur ráðstöfunartekna. Hagstofan birtir einnig upplýsingar um kaupmátt ráðstöfunartekna þar sem tekið er tillit til heildarlauna, annarra tekna og tilfærslna, svo sem barna- og vaxtabóta, að frádregnum sköttum.
Notendur eru vinsamlegast beðnir að athuga að tenglar í talnaefni (px töflur) hafa breyst og því hafa kerfistengingar API brotnað. Beðist er velvirðingar á þessu raski.
Breytingarnar eru samkvæmt eftirfarandi:
Launavísitala frá 1989 (VIS04000.px) Nýr tengill
Mánaðarleg launavísitala helstu launþegahópa frá 2015 (VIS04001.px) Nýr tengill
Mánaðarleg launavísitala á almennun vinnumarkaði eftir starfsstétt frá 2015 (VIS04002.px) Nýr tengill
Mánaðarleg launavísitala á almennun vinnumarkaði eftir atvinnugrein frá 2015 (VIS04003.px) Nýr tengill
Ársfjórðungsleg launavísitala helstu launþegahópa frá 2005 (VIS04004.px) Nýr tengill
Ársfjórðungsleg launavísitala á almennum vinnumarkaði eftir starfsstétt frá 2005 (VIS04005.px) Nýr tengill
Greiðslujöfnunarvísitala frá 2008 (VIS04008.px) Nýr tengill
Launavísitala til greiðslujöfnunar frá 1979 (VIS04009.px) Nýr tengill
Vísitala lífeyrisskuldbindinga fyrir opinbera starfsmenn frá 1997 (VIS04010.px) Nýr tengill
Sjá lista yfir eldri tengingar ásamt hinum nýju (PDF-skrá).
Talnaefni